Bonniville sléttan er einna helst þekkt fyrir að þar hafa verið sett mörg hraðamet á landi undanfarna áratugi, bæði á bílum og mótórhjólum. Þar eru kjöraðstæður til að setja hraðamet, brautin er 12 mílna löng og 6 mílna breið (19 km löng og 9,6 km breið), bein og breið.
Við komum einnig við á lítilli eyju, Antilope Island sem skagar út í Salt Lake vatnið, það var einnig skemmtileg upplifun þar sem við vorum stödd inní miðju landi, en sjávarlyktin var allsráðandi. Þar voru einnig mikið af mávum sem er pínulítið skringilegt miðað við staðsetninguna. Örrækja (pínu oggu pons), sandflugur og dauðir fuglar út um allt settu ákveðin hryllingsblæ á eyjuna. Sumir höfðu þó meiri kjark en aðrir og létu sig hafa það að vaða út í vatnið.
Stefnan er nú tekin á Reno í Nevada, það verður spennandi :-)
No comments:
Post a Comment