Fyrsta stopp hjá okkur var að fara í skoðunarferð um svæðið sem þeir nota til að taka upp bíómyndir og þætti bæði útisenur og innisenur. Við fórum í gegnum stúdíó sem hefur verið notað í þáttaröðina Bones, senan var að við vorum stödd á neðanjarðarbrautarstöð þegar allt byrjaði að hrisstast og nötraði eins og um jarðskjálfta væri ræða, áður en við vissum af birtist logandi tankbíll sem rann á hliðinni alveg upp að okkur. Við jarðskjálftan brast vatnsæð borgarinnar og kjallarinn byrjað að fyllast af vatni. Ótrúlega vel gert og raunverulegt.
Við keyrðum að sjálfsögðu eftir Wisteria Lane (Bláregnaslóð) í þáttaröðinni Desperate Housewifes (Aðþrengdar eiginkonur) og sáum hvar Gabriela og Carlos Solis, Karen McCluskey, Bree Van de Kamp, Susan og Delfino, Paul Young og allar hinar persónurnar búa.
Strákarnir voru duglegir að fara í tækin og við fullorðna fólkið dugleg að labba á milli veitingastaða og annarra afþreyingar (til dæmis máta hatta og gleraugu).
Ýmis þekktar persónur úr kvikmyndaheiminum áttu greinilega erindi í garðinn daginn sem við vorum þarna og því til viðbótar sáum við nokkra bíla sem við könnuðumst við úr gömlum bíómyndum.
No comments:
Post a Comment