Þar sem við ætlum að vera hér í 3 nætur þá var ákveðið að
byrja á borginni og fara síðan í skoðunarferð út fyrir borgina þ.e. upp í
fjöllin og niður á saltsléttuna.
Við vorum komin niður í bæ rétt um klukkan 9, fórum sem
leið lá til að skoða „Temple Square“ en það er minnisvarðar mormóna um Jesú
krist, enda voru það mormónar sem „stofnuðu“ borgina árið 1847.
Við byrjuðum á því að setjast niður samkomusal sem tekur
6500 manns í sæti og hlustuðum á magnaðann orgelleik þar sem hljóðgæðin voru
hreint út sagt meiriháttar (reyndar var það bara hluti af okkur sem gátu
hlustað þar sem drengirnir og Odda fengu hláturskast í miðju lagi og gátu ekki
með nokkru móti hamið sig og urðu að yfirgefa salinn, þar sem þarna voru pílagrímar
alls staðar úr heiminum að heimsækja musteri mormóna og vildu þeir hafa hljóð á
meðan tónleikunum stóð).
Í einni byggingunni (en þær eru 12 talsins) sáum við 3ja
metra háa styttu af Jesú Krist, ótal málverk og annað sem tengir okkur við trúna.
Eftir að hafa gengið um svæðið og nokkrar byggingar í miklum hita, sársvöng og
þyrst brast viljinn til að halda hluta af boðorðunum tíu. Mornónarnir voru mjög
áfjáðir í að við færum inn í allar byggingarnar og skoðum þær með leiðsögumanni,
en ég sagði að við værum nú þegar komin hringinn (sem var ekki alveg satt, við
áttum enn eftir 4 byggingar og þar með var boðorðið þú skalt ekki ljúga brotið). Odda og strákarnir fór gegn boðorðinu þú skalt
ekki leggja nafn drottins guðs þíns við hégóma og Valdi tók upp vídeó í
leyfisleysi og braut þar með boðorðið þú skalt ekki svíkja.
Þar sem við vorum búin að verja meirihluta af deginum hjá
mórmónunum þá vonuðumst við til að okkur yrði fyrirgefið þó svo að við hefðum
ekki alveg farið eftir bókinni þegar kemur að boðorðunum tíu.
Á morgun skoðum við Saltslétturnar, góða nótt.

No comments:
Post a Comment