Sunday, June 24, 2012

Síðustu dagarnar af fríinu.......

...................það er búið að vera alveg rosaleg gaman hjá okkur. Allt gengið vel og við upplifað ýmis ævintýri. Nú fer að líða að heimkomu og hlakka allir mikið til.







Sumir eru þreyttari en aðrir eftir fríið en allir ánægðir og glaðir.




Við höfum tekið mikið af myndum sem ekki rata allar hingað inná síðuna, en áhugasamir geta komið á myndasýningu á Kjarvalsstöðum stuttu eftir heimkomu...djók


Odda og Elín Ósk, takk kærlega fyrir pössunina á Tinnu og Sigga takk fyrir pössunina á Kiu. Magga og Stebbi það var meiriháttar að hitta ykkur og Gúa, Tóti og Hilmir það var æðislegt að vera með ykkur á Florida. Róbert nú förum við að safna fyrir húsinu á Key West :-)


Floridafarar þið eigið eftir að skemmta ykkur konunglega, veðrið á eftir að leika við ykkur og við getum lofað ykkur að peningaveskið verður léttara við heimkomu.

Hin fimm fræknu





Ásgerður, Viggi, Róbert, Viðar og Ásgeir Snær

Arlington kirkjugarður

Washington er yndisleg borg, hér krauma ýmsir menningarstraumar og gamli og nýi tíminn mætast.


Eitt stendur þó í stað og breytist ekkert í gegnum aldirnar en það er Arlington kirkjugarðurinn, sem er hermannagrafreitur og þar standa hvítir legsteinar eins langt og augað eigir, yfir 250 þúsund leiði eru í garðinum. Í Arlington eru einnig leiði nokkurra fyrrverandi forseta Bandaríkjanna en sennilega er leiði John F Kennedy þekkast. Þar logar eldur alla daga ársins, alltaf. Látlaus en fallegur staður.





Enn þann dag í dag er verið að jarðseta núverandi og fyrrverandi hermenn, við sáum líkfylgd þar sem kistan var dreginn á líkvagni af hestum og hermenn gengu bæði fyrir framan og fyrir aftan líkvagninn til að heiðra hinn látna eða hina látnu.


Mikið er af minnisvörðum í garðinum, leiði óþekkta hermannsins, minnisvarði um þá sem létust í Lockerby slysinu 1988 yfir Skotlandi, minnismerki kvenna sem hafa, eru og munu þjóna í Bandaríska hernum, minnismerki þeirra sem létu lífið í Challenger slysinu og fleiri og fleiri.




Saga Arlington nær til ársins 1785 og á þessari síðu er hægt að fræðast um garðinn frá upphafi, en þar var upphaflega plantekra og síðar nýlenda fyrir fyrrverandi þræla  http://www.arlingtoncemetery.mil/Default.aspx

Saturday, June 23, 2012

Bollakökur í Georgetown.....must have!

hhhmmmmmm..........



Já maður stendur í biðröð í 106 Fahrenheit til að fá sér bollakökur, ekki er öll vitleysan eins.




þetta er víst sá staður í Georgetown sem engin má missa af.........mmmmmmmmmmmmm


Priceline....hvaða rugl er þetta




Eins og þið vitið notum við Priceline.com mjög mikið og höfum bókað hótel, flug og bílaleigubíla í gegnum tíðina og erum orðin platinum viðskiptavinir. Platinum viðskiptavinum er stundum boðin tilboð sem standa öðrum ekki til boða, í þetta sinn fengum við tölvupóst um að gista á herragarði í Georgetown í Washington. Það bara gleymist að láta okkur vita að húsið og innanstokksmunir séu frá árinu 1766 og aðeins farið að rykfalla og fúna.  Það er spurning hvort platinum þýði allt í plati!



Við létum okkur þó hafa það, rúmin eru svolítið lítil og hörð en morgunmaturinn var fínn.
Mæli sérstaklega með þessari bókunarsíðu www.priceline.com og ævintýrin munu hellast yfir ykkur.



Friday, June 22, 2012

Sumir eru bara sætari en aðrir....

...... hver getur staðist þetta augnaráð.....


þessi er örlítið meira ákveðin til augnanna.......................


..................svo eru það þessir sem eru algjörlega ómótstæðileg


Wednesday, June 20, 2012

Lögð af stað til DC

Við erum komin af stað til DC. Veran í Kissimee var frábær, við munum pottþétt koma hingað aftur.
Erum núna stödd í Savannah sem er frægur draugabær í Georgiu. Líkbílar á hverju götuhorni og mikil suðurríkjastemming. Við fyrir mistök lentum inní í fátæka hverfinu og satt best að segja leið okkur frekar illa. Áttum von á hverju sem var en sluppum ósködduð út.




Á leiðinni til Savannah drap bílinn á sér á hraðbrautinni (75 mílna hraða) og stýrið læstist.....shitttttt....hvað mér brá. Eina sem mér datt í hug var að skella bílnum í hlutlausan, en ekki vildi betur til en að hann hrökk í bakkgírinn.....einmitt....þetta er nýr bíll og ég hefði getað stútað gírskiptingunni á svipstundu fyrir utan það að fjölskyldan var í bráðri hættu. Betur fór en á horfðist enda er ég ágætis bílstjóri þegar bílarnir eru í gangi.



Við komuna til Savannah fórum við og fengum okkur að borða og eins og venjulega vorum við spurð hvaðan við værum og hvaða tungumál við værum að tala. Þegar Viggi svaraði varð afgreiðslustúlkan sem hafði haft mikinn áhuga á okkur mjög skrítin í framan, augun á henni stækkuðu og stækkuðu og svipurinn á henni færðist úr því að vera þjónustulundað bros í skelfingu. Það var kviknað í (þetta er ekki grín) en sem betur fer fyrir utan staðinn. Áður en við gátum snúið okkur við hljóp meiri hluti starfsmannanna út á bílastæði til að reyna að slökkva eldinn. Allar fötur sem til voru í eldhúsinu voru fylltar af vatni og starfsmennirnir reyndu eins og þeir gátu að slökkva eldinn sem logaði glatt í gróðrinum fyrir utan húsið. Það hefði getað farið illa ef slökkviliðið hefði ekki verið svona fljótt á staðinn. Myndir verða settar inn síðar af stæltum slökkviliðsmönnum við störf.







Það er aldrei lognmolla í kringum okkur.

Universal studios

Vá hvað þessi garður er flottur, við eyddum heilum degi þarna og hefðum vel getað eytt öðrum degi til þarna. Meira að segja drengirnir kvörtuðu undan fótaverkjum þegar við vöknuðum í morgun.


Við hittum Victor Vandom, Betty, Stínu og Stjána, Köttinn með Höttinn, Spiderman og Hulk.






Síðan heimsóttum við Harry Potter og vini hans í Hogwarts og þar fengum við okkur smjörbjór (mjög góður).






Gleðileg jól kæru vinir....ekki seinna vænna en að ná góðri mynd í jólakortið





Love !