Sunday, June 8, 2014

Á leið til San Francisco

það er magnað að keyra frá Reno til San Francisco, þvílíkt landslag, einhvern veginn finnst manni eins og himininn, fjallagarðarnir og engin séu miklu stærri en við þekkjum heima á Fróni, mögulega er það vegna þess að Ísland er ekki á sömu breiddagráðu og San Francisco :-)

 
Við ætlum að vera 4 nætur í stórborginni og njóta alls sem hún hefur uppá að bjóða. Leiðin frá Reno er ekki löng og ákváðum við að taka "Lake Tahoe" í leiðinni. Vatnið liggur í tveimur fylkjum, Nevada og Californiu, fylkismörkin liggja langsum eftir miðju vatninu. Það er greinilegt að við vatnið býr efnamikið fólk, við sjáum það bátunum, bílunum og húsunum.






No comments: