San Diego er önnur stærsta borgin í Kaliforníu og þar búa um 1.3 milljónir íbúa, í heildina búa rúmlega 3 milljónir í borginni og úthverfum.
Veðrið á meðan við vorum þarna var eins og mér skilst að það sé alltaf, milt og sólríkt og hitinn fór upp í tæplega 90 á farinheit.
Það er gaman að þvælast um í "gamla bænum" en hann hefur verið endurbyggður að hluta. Mikið að fallegum gömlum húsum með Mexikanst yfirbragð.
Annað hverfi sem mér fannst áhugavert er „Gaslamp Quarter“ , en það hverfi er frá Viktoríutímanum, við göturnar standa ljósstaurar sem hafa gömlu gaslampana sem fyrirmynd.
Í Balboa garðinum er dýragarður San Diego og að sjálfsögðu vörðum við heilum degi þar.Margir segja að þessi dýragarður sé með þeim bestu í heimi og get ég tekið undir það þar sem við fengum að líta Panda birni, en þá höfum við aldrei séð með berum augum. Mögnuð upplifun :-)
Slanga í óhugnalegri stellingu
Svo sætur, heldur að glugginn sé kvenmannsgíraffi, múhaaaa

No comments:
Post a Comment