Rétt rúmlega átta í morgun vorum við mætt í lobbýið þar sem okkar beið kynningartúr um borgina. Helstu túristas staðirnir voru skoðaðir og í lokin lét ég undan þrýstingi karlpeningsins um að fara í þetta frábæra Parísarhjól þeirra Singapor manna, ekki nema 165 metra hátt (það er töluvert hærra en þúsaldarhjólið í London) og alveg ný tekið í notkun. Það er allavega þannig í bílabransanum að maður heldur sig frá fyrstu framleiðslunni því oftar en ekki eru einhverjir gallar sem koma fram í þeirri framleiðslu. En allt gekk þetta stóráfallalaust fyrir sig, ég pínu pínu pínu stressuð fyrst þegar við fórum af stað en fyrst að fyrstu 15 mínúturnar gengu „eðlilega“ fyrir sig þá taldi ég í mig kjark til að standa upp og njóta útsýnisins.
Já, svo er ein mynd hérna af einu merkasta kennileiti borgarinnar, en það er ljónið með sporðinn. Reyndar fannst okkur fólkið sem stillti sér upp þarna miklu áhugaverðara :-)
Komið á hótelið með þrúttnar fætur og dauðþreytt eftir frábæran dag. Sundlaugin bíður, húrra húrra húrra....
