Friday, June 27, 2014

Heimför


Nú fer að líða að því að við förum heim, þetta er búið að vera ótrúlega skemmilegt og tíminn hefur liðið mjög hratt.

Við höfum komið við í átta fylkjum í ferðinni og þau eru öll frekar ólík á skemmtilegan hátt.

 
 
 

 
 
 
 
Takk fyrir að fylgjast með okkur á blogginu, þangað til næst




Hjólatúr í Denver og Mt. Evans

jæja það er komið að því, strákarnir eru að fara að hjóla. En auðvita þarf að galla sig upp fyrst til að vera öruggari í umferðinni hérna sem er bæði töluvert hraðari og meiri en við þekkjum alla jafna á Miklubrautinni.


Síðan var haldið af stað, þeir hjóluðu um borgina og í framhaldi af því vestur fyrir borgina upp í fjöllin. Stefnan var tekin á Mt. Evans en það fjall er ríflega 4300 metra yfir sjávarmáli og segja fróðir menn að þetta sé hæsti malbikaði vegur í norður Ameríku. Vegurinn er tvöfaldur alla leið upp þó svo að hann þrengist örlítið þegar komið er efst á toppinn.


Útsýnið er rosalega fallegt og hægt að sjá til allra átta.

 
 Ég og strákarnir litlu ( þeir eru reyndar ekki svo litlir ennþá) fórum keyrandi upp á fjallið sama dag og Viggi og Valdi fóru, við gátum bara ekki látið þessa lífsreynslu fram hjá okkur fara.

 

Við lentum í ótrúlega fjölbreyttu veðri, sól og tæplega 90 á Farenheit og alveg niður í 54 á farenheit með snjókomu og eldingum.



 
 
Hver vill ekki fara í snjókast í lok júní
 
 
Reyndar er líka mjög mikið dýralíf í fjallgarðinum, dádýr, fjallageitur, birnir, buffalar og alls konar minni dýr sem ég kann ekki alveg að segja frá. Þessi stillti sér upp fyrir strákana þegar þeir komu efst á fjallið


Kleinuhringir.....

það er aldrei hægt að borða of mikið af kleinuhringjum. Við fórum inná stað sem er með bakaríð í afgreiðslunni og mikið ROSAlega var þetta gott, við fengum hringina beint af bandinu, sjóðandi heita og þeir hreinlega bráðnuðu upp í okkur.





Viggi og Ásgeir eru komnir í hlutastarf á þessum stað.......eins gott :-)

 

Thursday, June 26, 2014

Colorado Springs og þúsundir hjólamanna

Á leið okkur til Denver frá Albuquerque komum við við í Colorado Springs. Yndisleg borg ekki langt frá Denver, mjög gróðursæl en er vel þekkt sem þjálfunarbúðir fyrir Bandaríska Ólympíuliðið.


Á leiðinni vorum við að velta fyrir okkur hvers vegna það væri svona ótrúlega mikið af mótorhjólafólki á ferðinni, fyrsta ágiskun var gott veður eða fólk komið í sumarfrí. Við veltum þessu ekki lengi fyrir okkur, en þegar við komum inn í miðbæinn sáum við ástæðuna, það var mótórhjólahátíð og þarna voru hjól í þúsunda vís.






Það var mikið um að vera, allar götur í miðbænum lokaðar fyrir bílum, þar sem þær voru fullar af hjólum og hjólafólki (flestir tattóveraðir fyrir allann peninginn), þarna var útimarkaður (hjólavörur af öllum toga, matur) og svo voru tónleikar mitt í öllu saman.


Viggi gekk um með glampann í augunum og dáðist að hverju hjólinu á fætur öðru.

 
Nú styttist í heimkomu, en áður ætla strákarnir Viggi og Valdi að hjóla (mótórhjóla) í Denver




 

Tuesday, June 24, 2014

Nýja Mexikó.....Route 66

Eins og fram hefur komið stóð upphaflega til að keyra "Route 66" en ferðin þróaðist í aðra átt. Við gátum þó ekki látið hinn fræga þjóðveg fram hjá okkur fara og keyrðum frá Miklaglúfri á þjóðvegi 66 alla leið til Albuquerque.


Ég væri alveg til í að koma hingað aftur og eyða aðeins meiri tíma í að upplifa menninguna og tenginguna í Mexikó. Í Albuquerqe eins og öðrum gömlum bæjum er "gamli bærinn" samansafn af gömlum fallegum húsum, litlum krúttaralegum götum og fullt af búðum með alls konar minnjagripi og fallegt handverk mest allt frá frumbyggjum Bandaríkjanna í bland við mexíkanska menningu. Að sjálfsögðu prófaði hópurinn hluta af varningnum sem var til sölu.




 
Haldið þið ekki að Viðar hafi svo dottið í lukkupottinn, ein af uppáhaldsþáttaröðum hans er einmitt tekinn að hluta upp í Albuquerqe, þetta er eins og flestir vita "Braking Bad" með Bryan Cranston sem fer með aðalhlutverið og lekur Walter White sem er framhaldsskólakennari sem leiðist inná rangar brautir. Við fórum á nokkra þekkta staði úr þáttunum
 
 
Matsölustaðurinn þar sem hann hitti yfirmann sinn Gustavo Frigs en hann réði yfir stóru eiturlyfjaveldi


 
Bílaþvottastöðin þar sem Walter vann aukavinnu og síðar notaði hann stöðina til peningaþvættis
 
 
Heimili Walters
 
 
Svo að sjálfsögðu bílinn sem hann notaði til framleiðslu á eiturlyfjunum
 


Áður en haldið var af stað í átt til Denver stoppuðum við í "Diner" hressingarskála "Sam´s 66 Service" og fengum okkur að borða. Þessi Diner er staðsettur við þjóðveg 66 í miðri borginni og er mjög vinsæll hjá okkur ferðamönnunum jafnt sem mótórhjólafólkinu, sem leggur á sig að keyra á hjólum frá Chicago til Los Angeles. Við fengum okkur að sjálfsögðu hefðbundna rétti sem hægt er að kaupa í Dinerum, þ.e. Sloppy Joe og Shake, hmmmmmm