Tuesday, June 24, 2014

Ég verð að deila þessu með ykkur

og þó svo að ég hafi ekki myndir til að styðja söguna þá treysti ég ykkur til að myndskreyta.

Málið er að við áttum erindi inn í verslun sem selur mótórhjólavörur, jakka, skó, hjólalyftur, hanska og alls konar svona dót fyrir stráka. Viggi var búin að finna á sig leðurbuxur (lederhose) og var hann kominn inn í klefann að máta. Eftir dágóða stund kom hann fram kósveittur og vildi endilega skoða einni stærð minna (já minna). Eftir töluvert langann tíma kom hann aftur fram, enn sveittari en fyrr og nú jafnvel móður.

Á sama augnabliki og Viggi kemur fram, kemur Valdi með tvennar goritex buxur til að máta. Viggi var ægilega ánægður með leðurbuxurnar og vildi endileg að Valdi myndi máta líka. Valdi smeygir sér inn í næsta klefa og ekki líður á löngu áður en það fara að heyrast ýmis hljóð frá mátunarklefanum, jafnvel orðið sem ekki má segja hér í USA "Fuck".
Kallinn kemur svo fram, ótrúlega flottur í leðurbuxunum en ekki síður sveitur en Viggi. Þeir félagarnarnir bera saman brækur sínar og fara svo hvor í sinn klefa. Viggi var fyrr til og kom út löðursveittur (ég hreinlega vissi ekki hvað gekk á þarna inni), en þegar hann var kominn fram heyrist úr næsta klefa "Viggi getur þú komið og hjálpað mér", Viggi rífur upp hurðina og þar stendur Valdi með buxurnar á hælunum og þarf hjálp við að komast úr. Viggi stingur sér inn í klefann og byrjar að toga og innan skamms var hann búin að rífa brækurnar af Valda.  Ég segi ykkur það satt, þetta var bilað fyndið, tveir fimmtugir karlar að aðstoða hvorn annan við að komast úr leðurbuxum :-)

No comments: