Friday, May 30, 2008

5 vikur líða hratt


Nú fer að styttast í heimkomu, ferðin er búin að vera frábær og alveg ógleymanleg. Við munum nota daginn í dag til að skoða eins mikið og við getum hér í Hong Kong.....við erum reyndar búin að ákveða að koma hingað aftur með tómar töskur og einar nærbuxur til skiptanna :-) eða eins og Ásgeir segir "svo við getum verslað af okkur rassgatið" segið þið svo að þetta sé ekki "genatíkst"


Takk fyrir að hafa nennt að fylgjast með okkur á blogginu, en eins og við sögðum í byrjun þá var þetta okkar fyrsta blogg og vonandi hafið þið haft ánægju af :-) Hingað til hefur ferðasagan verið sett niður í dagbók (þið vitið blað og penni) en þetta er bara miklu skemmtilegar og ekki skemmir fyrir að geta sett inn myndir. Þið þurfið reyndar ekki að kvíða fyrir að myndirnar sem við settum á netið séu þær einu sem við tókum, ó nei við eigum ríflega 5000 myndir til að sýna ykkur þegar við komum heim.




Love you all

Tveir dagar, allt of stuttur tími


Vá......þvílíkt og annað eins....við höfum komið til nokkura stórborga í heiminum en Hong Kong er engu lík. Manni líður bara eins og sveitamanni hér í stórborginni. Öll auglýsingaskilti í ofurstærð, ég skil það nú eiginlega ekki, því maður þarf virkilega að hafa fyrir því að sjá allt skiltið í einu. Fyrir utan það þá eru skiltin hengd ofaní hvert annað á ensku og kínversku til skiptis. Tveir dagar eru hreinlega allt of stuttur tími til að geta lesið á öll skiltin :-)



Hong Kong er borg fyrir nokkra vini mína ;-) þó sérstaklega þá sem eru fyrir flott vörumerki s.s. Burburry, Channel, Kanel og hvað þetta heitir nú allt. Allt á gjafaprís. Þið sem þetta á við, drífið ykkur á netið og bókið ykkur ferð hingað fyrr en seinna.



Í morgun vorum við nátttúrulega komin á lappir fyrir allar aldir til að nýta daginn, við fórum í svokallaðann "Hong Kong Island Tour" í þeim túr er farið á þann hluta Hong Kong sem er á eyjunum hér við meginlandið. Þar eru skartgripaframleiðendur með verksmiðju, sem við náttúrulega heimsóttum, frægur götumarkaður (þar sem við versluðum bara pínu lítið, mér finnst frekar erfitt að prútta við fólk) og síðast en ekki síst er útsýnispallur Hong Kong manna (og kvenna) út á eyjunum. Þegar þangað var komið var allt grátt.....við vorum komin uppí skýin á ný og því frekar takmarkað útsýni nema rétt fram fyrir nefið á manni.


Í Hong Kong búa 7 milljón manns, og flestir búa í háhýsum í litlum íbúðum. Margir hverjir leigja af sveitafélaginu því að fasteignaverð er mjög hátt hérna. Hong Kong er byggð á gamalli eldstöð og því eru flest húsin hér í mjög miklum halla (líka blokkirnar), verslunarsvæðið er þó mest allt á jafnsléttu. Þegar menn tala hér um tímabil, miðast allt við fyrir og eftir SARS (fuglaflensuna), þetta er bara eins og í Eyjum, fyrir og eftir gos. Hagkerfið hérna tók mjög mikla dýfu eftir SARS flensuna en virðist vera búin að ná bottninum og einhver smá vottur fyrir hagsveiflu uppá við :-) Fasteignaverð féll um allt að 40% og atvinnuleysi jókst þar sem ferðamannastraumurinn virtist streyma í aðrar áttir. Bátafólk er ennþá mjög algengt hér við Hong Kong og eru hýbýli þeirra ekki mjög vistvæn.

Eitt sem kom okkur á óvart, en það er að oft á tíðum sjáum við, bæði í fréttum og í blöðum, asíubúa með andlitsgrisju til að verjast menguninni en svo hangir maturinn þeirra, bæði hrár og eldaður út um allar götur uppfullur af svifriki og annarri mengun. Svo éta þeir hann með bestu list....já, það er margt skrítið í kýrhausnum.





Eins og flestir vita þá eru kínverjar þekktir fyrir mikil mannvirki, hvort sem um brýr eða blokkir er að ræða. Við rákumst á nokkra staði þar sem verið var að vinna við og eitt áttu þeir allir sammerkt en það er að vinnupallarnir þeirra eru úr bambusprikum....það mætti seint bjóða Viðari frænda að fara uppí þá stillasa.



Smá getraun í lokin og óskast svör send á bloggið: Hvernig eru kínverskar pylsur "hot dogs"?

Thursday, May 29, 2008

Langur dagur


Loksins komin til Hong Kong, þetta tók ekki nema 22 klukkutima. Við lögðum af stað um þrjúleitið í fyrrinótt á leið til Sidney, reyndar var seinkun á vélinni en þó ekki nema í 40 mínútur. Út í vél og haldið af stað út á flugbraut.....eftir að hafa verið þar í dágóða stund heyrðist rödd flugstjórans í hátalarakerfinu þar sem hann tilkynnti að við þyrftum að fara aftur upp að flugstöðinni þar sem einhver tæknileg vandamál hefðu komið upp á leiðinni út á braut. Gott og vel, lagfæringin tók stutta stund þannig að heildarseinkun var tæpir tveir tímar.




Vélin sem átti að fara með okkur til Hong Kong átti að fara klukkan 10.45 og því gerði þessi seinkun ekkert til. Þegar við komum út að hliði til að fara til Hong Kong kom í ljós að það var líka seinkun á þeirri vél. Þó ekki nema klukkutíma seinkun. Þegar komið var að því að tékka inn í vélina, mætti flugstjórinn sjálfur í biðsalinn og ávarpaði farþegana. Málið var að vélin sem við áttum að fara með, hafði verið færð yfir á Jóhannesarborg og því þurfti að taka allan farangur og matinn og flytja yfir í aðra vél. Þetta tók sinn tíma því ekki var nema um 500 farþega að ræða. Þegar þessu var loksins lokið kom í ljós að það var einhver bilinun í þessari vél og kalla þurfti til flugvirkja.......ótrúlegt......hann mætti á staðinn, græjaði vélina og við komumst um borð. 2 tíma seinkun...........þegar við höfðum setið dágóða stund út í vél, tilkynnti hin geðþekki flugstjóri okkur að við værum að bíða eftir farþega......bíða eftir farþega...er ekki allt í lagi....hann er í fyrsta lagi tveimur tímum of seinn og lætur síðan 499 farþega bíða eftir sér.




Farþeginn hefur greinilega skilað sér, því að enn og aftur var flugstjórinn kominn í kallkerfið og tilkynnti núna að það þyrfti að taka eldsneytið af vélinni og dæla því á aftur því að vélin var ofhlaðinn af eldsneyti......halló........

Og bensínið komið á.....eins gott....þá getum við......ó nei, aldeilis ekki....nú kom í ljós að flugvirkjar eru í "semí" verkfalli og fóru ekki yfir hreyflana eins og þeir áttu að gera þegar vélin kom inn fyrr um morgunin. OK.....bíðum þá eftir flugvirkjanum.....ekki alveg....hann er ennþá í kaffi og því ákvað flugstjórinn að prófa hreyflana sjálfur (4 stykki) en til þess þurftum við að fara úr vélinni, úff......þetta tók rétt um klukkutíma og því var seinkunin orðin 4 klukkutímar þegar við loksins komumst í loftið. Ferðin var góð, fallegt útsýni á leiðinni og 30 stiga hiti í Hong Kong við lendingu um 21.30.


Myndir dagsins eru teknar í a.m.k. 34 þúsund feta hæð.

Wednesday, May 28, 2008

Hong Kong ding dong

ja, vid erum logd af stad til Hong Kong. Nuna sitjum vid a flugvellinum i Sidney og bidum eftir ad komast af stad til Hong Kong. Thad eru ca 9 klukkutima flug thangad og vid vorum ad koma ur 3.5 klukkutima flugi fra Christchurch i morgun.
Var einhver ad kvarta yfir Icelandair og hvad their leggja snemma af stad? Einmitt....vid forum a faetur i morgun klukkun 2.45......ja um midja nott.

Vid latum heyra i okkur thegar vid komumst a afangastad.

Bless i bili ;-)

Tuesday, May 27, 2008

Náin kynni


Seinni daginn okkar í Kaikoura fórum við og hittum "Márana" (Maori) og nudduðum saman nefjum. Þetta var alveg ótrúlega skemmtileg ferð og ekki síður fróðleg. Við gengum í gegnum skóginn með þeim og fengum að smakka te sem þeir segja að sé allra meina bót....allavega var regnboginn mjög fallegur. Bara muna að nota bara laufblöðin sem eru með götum í eftir skordýrin, því þau eru best í teið. Við lentum í söngkennslu og munum halda smá sýnikennslu þegar við komum heim í Márasöngvum "Manawatu".....Viggi er að gera alla brjálaða á æfingum...Keltar það er komið nýtt lag í safnið!

Við fórum í heimahús og þar þurftum við að syngja lagið (sýna hvað við vorum klár), því næst kynntum við okkur að hætti Mára og að sjálfsögðu vorum við búin að fá ný nöfn og að lokum var okkur boðið kaffi og meðlæti (eins gott því að við vorum aðframkomin af hungri, eins og venjulega).

Eftir að hafa núið saman nefjum í kveðjuskyni var lagt af stað til Christchurch sem er síðasti áfangastaður okkar hér á Nýja Sjálandi. Fyrir þá sem hafa áhuga, þá býr söngkonan Hera Hjartardóttir (þessi með andlits tattúið) hér. Hannes býr líka hérna.

Sunday, May 25, 2008

Hapuku lodge - "duse pont"

Orðlaus......þetta er frábært staður - tólf stig, ekki spurning. Hvað finnst ykkur um að vakna við fuglasöng, líta út um gluggann á snævi þakin fjöllin á aðra höndina og með útsýni yfir hafið á hina höndina (þurfum ekki einu sinni að fara fram úr rúminu, því það eru flennistórir gluggar allan hringinn). Ólífuakrar allt um kring og kvöldmaturinn í kvöld töltandi um túnið hér fyrir neðan? Ef einhver ykkar ætlar í framtíðinni til Nýja Sjálands þá er þetta staður sem þið verðið að koma við á http://www.hapukulodge.com/kaikoura/



Í gærkvöldi fórum við niður úr trénu og borðuðum á veitingahúsi hér á staðnum dýrindis kvöldverð. Ný Sjálenskt lamb, "Hjerte plomme" eins og Dungal finnst best og strákarnir fengu sér spaghetti með apakjöti (smáapar sem eru ræktaðir hér í trjánum).


Þetta minnir mig nú reyndar svolítið á Húnavelli, þ.e. það er allt svo persónulegt hérna, eigandinn sat með fjölskylduna sína og borðaðaði með okkur (býr reyndar í San Fransisco er hér til að ráða sér nýjan hótelstjóra, hhmmm), kokkurinn spjallaði við stákana á meðann hann (hún) eldaði og þjóninn sagði okkur sögur af sjálfum sér og fjölskyldu.


Í morgun, eftir að hafa farið í sturtu með útsýni yfir kindahópinn, fórum við svo niður á strönd hér við þorpið að skoða sellátrin og albatrossana, en sá fugl hefur stærsta vænghafið af þeim fuglum í heiminum sem fljúga, ...sem sagt risastór mávur.


Selirnir (sæljónin) voru alveg ótrúlega gæfir, þegar við ætluðum að ganga eftir göngustígnum kom í ljós að þeir höfðu tekið hann fyrir sig og lágu þar og hvíldu sig. Við hefðum sennilega getað klappað þeim ef við hefðum viljað koma einhent heim. Hér er líka mjög mikið af hvölum af öllum stærðum og gerðum og mörgæsum, allt í túnfætinum. Gerist ekki betra.



Love it!

Saturday, May 24, 2008

Monaco - Nelson

Komin í betra samband. Í gærkvöldi komum við til Monaco, Nelson á norðurströnd suðureyjunnar, eftir að hafa siglt í þrjá klukkutíma með "Herjólfi" af stærri gerðinni. Siglingin var að meiri hluta til inní mjóum og djúpum fjörðum, afar fallegt og athyglisvert. Veðrið á leiðinni var ekki uppá sig besta til myndatöku, rok, rigning og þoka. Þið verðið því bara að ímynda ykkur fegurðina sem blasti við (ef skyggnið hefði verið betra).

Þegar við komum í land í Picton þurftum við að fá annan bílaleigubíl, því ekki má flytja bílleigubíla á milli eyjanna. Nú ökum við um á Mazda 6, ég á bara eftir að finna út hvort það séu ekki einhverjir takkar sem eru óuppgötvaðir. Leiðin lá frá Picton til Monaco í gærkvöldi, hér dimmir enn fyrr og því var orðið myrkur um fimm leytið, skrítið að keyra í niðamyrkri upp og niður, kruss og þvers og enda svo á fallegri upplýstri strönd. Við stoppuðum á leiðinni til að njóta stjarnanna, þvílíkt og annað eins.....aldrei séð svona mikið af stjörnum á himninum.


Þegar við komum til Monaco var eins og við keyrðum inní lítið breskt þorp, húsin öll í "Cottage" stíl þ.e. rauð múrsteina hús á tveimur hæðum, arin í öllum húsum og svefnherbergin uppi á lofti. Alveg rosalega krúttlegt allt saman. Engar pöddur þar :-)




Í morgun lögðum við svo af stað í tréhúsin, þar sem við sitjum nú í vellystingum við arin í svefnherberginu í 10 metra hæð frá jörðu. Við keyrðum úr rjómablíðu af norðurströndinni inní grenjandi rigningu á austurströndinni.



Það kemur þó ekki að sök því það er allt svo hrikalega kósý hér, strákarnir á neðri hæðinni og við með nuddpott út á einni greininni.

Haeri mai

Takk

Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar, já það er ekki amalegt að fæðast að vori og eiga svo afmæli að hausti til :-) ekki skemmir fyrir að geta notið þess í 36 klukkustundir.

Við erum núna í Nelson (Monaco) og netsambandið er svo til ekki neitt. Við fórum í kvöld í tréhúsið (vonandi ekki mikið að skorkvikindum þar) þar sem ég vona að það sé betra internetsamband.

Friday, May 23, 2008

Það er ekki allt sem sýnist.....


.....í bíómyndinni „Lord of the ring“ – Hringadróttin sögu. Myndin var öll tekin upp á Nýja Sjálandi og fórum við á nokkra tökustaði í dag í fylgd heimamanns (kiwi manns). Eins og þeir vita sem hafa séð myndirnar þá er landslagið oft á tíðum stórfenglegt en þó jafnframt draumkennt, sem hefur sínar skýringar.




Tökur á myndunum tóku 18 mánuði og þá er ekki talinn tíminn sem fór í undirbúning og frágang á sviðsmyndum. Wellington var því undirlögð af fólki sem vann við myndina (leikarar, tæknilið og allt sem þessu fylgir) þennann tíma. Viggo Mortensen, var einn þeirra aðila sem lifðu sig algjörlega inn í hlutverkið og gekk hann um bæinn, á milli taka, með sverðið um sig miðjan. Peter Jackson leikstjóri var með 4 aðila í fullu starfi að leita að tökustöðum fyrir myndina, en þegar maður sér myndirnar þá heldur maður að þetta sé allt saman af svipuðum slóðum. Flestir tökustaðir eru ólíkir því sem maður sér í myndinni, því að það er búið að tölvuvinna stórann hluta af myndinni, þó mátti sjá í dag nokkur atriði sem maður kannaðist við úr myndinni. Þó voru fleiri staðir sem maður kannaðist ekkert við þó svo þeir hefðu spilað stóra rullu í myndunum. Tré voru færð til (og við erum ekki að tala um runna, heldur risastór tré), hallir og kastalar byggðir og allt úr frauðplasti (ekkert mál í dag að búa til sviðsmynd). Það var meira segja farið í smáatriði eins og að búa til stærri og meira glansandi laufblöð á trén svo það sæist betur í mynd (kom on).



Eftir hobbita, álfa, orka og svarta riddara fórum við á eitt flottasta safn sem við höfum komið á og eru þau orðin nokkur. Þetta safn heitir „Te papa Tongarewa“ sem útleggst „Þar sem fjársjóður liggur“ www. tepapa.govt.nz þar mátti sjá allt sem tengist Nýja Sjálandi frá upphafi til dagsins í dag, hvort sem það snérist um jarðfræði, náttúru, frumbyggja, verslun, menntun, list............stríð og allt þar á milli. Þetta er svona safn þar sem fræðslan er gagnvirk, það mátti fikta í nánast öllu og hentaði það fjölskyldunni vel. Því miður mátti ekki taka neinar myndir á safninu, því verðið þið bara að kíkja á heimasíðuna þeirra ef þið hafið áhuga.


Í tilefni þess að Ísland komst áfram í aðalkeppni Eurovision þá fórum við á flottan Indverskan stað „Great India“ og fengum þar frábæran mat og þjónustu á Indverskan máta, dari bar. Við segjum áfram Ísland, koma svo með Eurobikarinn heim.

Á morgun munum við svo fara yfir á suðureyjuna, með Nýsjálenskum „Herjólfi“ - sjóveikipillur verða örugglega bruddar til að koma í veg fyrir veislu hjá fiskunum.

Thursday, May 22, 2008

Indiana Jones í Wellington


Eftir rúmlega 5 tíma akstur erum við kominn til Wellington syðst á norður eyjunni. Að sjálfsögðu er Frónið fallegast, en Nýja Sjáland fer langt í að jafna það. Ekki skemma heldur haustlitirnir fyrir sem skartu nú sýnu fegursta.


Ójá....við erum sko búin að sjá Indina Jones.....nananannnaaa........og ekkert smá góð mynd eins og Viðar sagði þegar við gengum út úr bíóinu. Bara til að upplýsa alla Indiana Jones aðdáendur þá er þetta örugglega ekki síðasta myndin sem Harrison Ford mun leika Indiana í.


Í bílnum á leiðinni hingað í dag var ýmislegt rætt. Þar á meðal var komið inná ættfræði, ömmur og afar, frænkur og frændur og allt það. Það er eins og fjarlægðin geri mann ættræknari en ella. Ásgeir Snær var að tala um ættmenni sín í Vestmannaeyjum, og segir allt í einu við pabba sinn, "hey pabbi, er amma Bára ekki frænka þín?" Viggi hváði við og drengur segir aftur og nú enn ákveðnari "er hún amma Bára ekki frænka þín pabbi?" Já, þetta getur verið svolítið flókið þegar maður er bara 8 ára.



Deginum á morgun verður varið á slóðum Hringadróttinsögu og eflaust verður hægt að koma með eitthvað bitastætt þaðan. Annars sendi þið okkur bara sögur af Eurovison partýunum sem verða um allan bæ í kvöld. Ikke sant? Við reynar vitum úrslitin því að við erum 12 tímum á undan ykkur. Áfram Ísland :-)



Mér skilst að sumir hafi átt erfitt með að "commenta" á síðuna hjá okkur. Það sem þið eigið að gera er að lesa bloggið (hvað annað), síðan er neðst á hverju bloggi lítil grá lína þar sem stendur "Posted by Fjogur fraeknu at 11:29 PM 2 comments " þið smellið bara á comments og setjið þar inn texta (að eigin vali). Þegar því er lokið þarf að setja inn í stafina sem birtast í grænum lit fyrir neðan gluggan í reitinn þar sem hjólastólamerkið er. Reiturinn heitir "Word Verification" ok

Tuesday, May 20, 2008

Taupo

Þvílík náttúrufegurð, hér eru hverir og eldfjöll og hreint ekki ólíkt því sem við þekkjum heima. Við fórum í morgun á jarðhitasvæði sem kallast "Craters of the Moon" Gígar tunglsins.


Það var ekki laust við að manni liði eins og maður væri staddur í Haukadalnum, berjalyng, hveralykt, hólar og hæðir og kjarr allt um kring. Svæðið hefur verið gert aðgengilegt fyrir ferðamenn og því gátum við sprangað um svæðið og svo til horft ofaní gígina. Þeir kalla þetta líka Geysir, en þeirra gýs ekki þó hann sé töluvert stærri en okkar.


Seinnipartinn nýttum við til þess að láta fara vel um okkur í "Græna Lóninu". Græna lónið er baðsvæði þar sem hveravatnið er nýtt til að stjana við gestina. Þvílíkur unaður! Heitu pottarnir eru reyndar kaldari en laugarnar sjálfar....sennilega einhver misskilningur þar á ferðinni. Græna lónið bíður líka uppá alls konar "Spa" meðferðir sem ég nýtti mér í dag...........alveg yndislegt, á meðan léku drengirnir sér í laugunum.


Á morgun munum við halda suður á bóginn, til Wellington sem er borg syðst á norður eyjunni.