Hluti af Combo miðanum sem við keyptum var að hjólatúr, og að sjálfsögðu slóum við til og ákváðum að hjóla yfir Golden Gate brúnna.
Ég hef lítið hjólað síðustu 15 árin, en eins og einhver gáfumenni sagði "ef þú hefur einu sinni lært að hjóla þá gleymist það ekki...". Þetta er alveg hárrétt, en það sem gleymist í þessu samhengi er að maður er mögulega ekki í eins góðu líkamlegu formi og þegar maður lærði að hjóla, og einhvernveginn finnst mér eins og hjólahnakkurinn væri eitthvað mjórri en hann var hér áður fyrr (mögulega er rassinn stærri þó mér finnist það ólíkleg útskýring á rasssærinu sem ég er enn að glíma við).
Við hjóluðum meðfram ströndinni frá Fiskimannsbryggjunni (fishermanswharf) og alveg út í Sausilito, sem er lítill bær við hinn enda brúarinnar. Þetta var falleg leið og ekkert of erfið var okkur sagt á hjólaleigunni, nokkrar brekkur en ekkert sem við réðum ekki við (reyndar mundi ég flokka þessar "brekkur" sem fjöll) og svo er það náttúrulega brúin sem er hápunktur ferðarinnar. Hjólaumferð er aðskilin frá annarri umferð á brúnni þannig að það er auðvelt að hjóla á brúnni. Reyndar lentum við í töluverði mótvindi á leiðinni, en það kom ekki að sök.
Þegar komið var út í Sausilito þá tókum við ferjuna til baka (sem betur fer, ég hefði ekki meikað að fara til baka á hjólinu).
Þetta var algjör snildarferð, og langar mig að þakka samferðarmönnum mínum þolinmæðina við að bíða eftir mér í tíma og ótíma :-)
Dagurinn endaði síðan í kvöldverði á "Bubba Gump" fískihúsi þar sem við röðuðum í okkur skelfiski og öðru fiskmeti. Þjóninn okkar fór á kostum og stýrði meðal annars "Trivial" spurningakeppni sem snéri að þekkingu okkar á Forest Gump myndinni. Hver vann?
Thursday, June 12, 2014
Subscribe to:
Post Comments (Atom)


No comments:
Post a Comment