Tuesday, June 24, 2014

Hoover stíflan ekki ryksugan

Hoover stíflan er glæsileg þó hún nái ekki sömu áhrifum hjá okkur og Miklagljúfur enda er hún manngerð líkt og Kárahnjúkar (reyndar eru þeir eins og bækjarlækurinn við hliðin á þessari stíflu).
Herbert Clark Hoover sem var 31.forseti Bandaríkjanna átti meðal annars frumkvæðið af því að stíflan varð að veruleika.







Stíflan var byggð á árunum 1931 til 1936 og var lengi vel kölluð "Boulder Dam" en fékk núverandi nafn árið 1947.  Það sem er skemmtilegt er að stíflan er í tveimur fylkum þ.e. Nevada og Ariozona, Nevadabúar eru greinilega áhuga á að deilda mannvirkjum og öðrum náttúruperlum með öðrum :-)




Svo hefur Hoover stíflan verið notuð í nokkrar bíómyndir og þar eru líka verndarenglar steyptir í Brons og eru þeir hæstu bronsstyttur sem smíðaðar hafa verið í bandaríkjunum. Fyrir glöggva gesti þá sést eiginmaðurinn sitja á bekk á milli styttanna.


Svo rekumst við reglulega á skemmtilegt fólk og hér á Hoover stíflunni hittum við hattamanninn og konuna hans regnhlífafrúnna.

No comments: