Monday, June 9, 2014

Skoðunarferði í San Fancisco í skítakulda

Við lögðum snemma af stað, við gistum rétt fyrir utan miðbæinn og þurftum því að taka ferju til að komast í skoðunarferðina sem við vorum búin að panta okkur. Þetta er svona Combo, "hop on hop off" í tveggja hæða strætó, ferð yfir til Sausilito, ferð í Alcatraz, hjólaferð, þrjár skipulagðar gönguferðir og kvöldferð um borgina og nálægð hverfi.

 
 




 
Þar sem við lögðum snemma af stað, var ekkert skrítið að það væri pínu kalt, en auðvita átti það að lagast þegar líða færi á morguninn. Að sjálfsögðu drifum við okkur uppá efri hæðina í vagninum og sátum síðan í hávaða roki og kulda og nutum borgarinnar. Það var sem sagt haustverður í borgunni að okkar mati.  Brrrrrr...........OMG hvað það er kalt..........


Þegar við keyrðum yfir Gullnu hliðið (Golden Gate) hélt ég hreinlega að ég tækist á loft þegar vindurinn náði hámarki. Brúin er helsta kennileiti borgarinnar, og stendur þar sem San Francisco flói og Kyrrahafið mætast. Brúarsmíðinni lauk árið 1937 og var hún lengi vel lengsta hengibrú veraldar eða þar til á því herrans ári 1964. Brúin er rúmlega 2,7 km löng, 6 akreinar ásamt hjólastíg og stíg fyrir gangandi vegfarendur. það er magnað að keyra yfir þessa sögufrægu brú.




 Um kaffileytið var stefnan tekin á Alcatraz (the Rock), en það er eyja í San Franciso flóa sem upphaflega var notuð sem virki, herstöð og herfangelsi.  Síðar var eyjan og aðstaðan notuð sem fangelsi fyrir illræmdustu glæpamenn Bandaríkjanna.

 
 
Þetta var áhugaverð skoðunarferð, en mikið rosalega hefur aðbúnaður verið ömurlegur hjá þeim sem þarna þurftu að vera. Fangelsið var starfsrækt í 29 ár en því var lokað 1963. Þar voru að jafnaði 260 fangar hýstir hverju sinni, en í heildina voru þetta um 1567 fangar sem afplánuðu refsingu á eyjunni. Það má sannarlega segja að þetta hafi verið refsivist en ekki betrunarvist því það fór hrollur um mann þegar maður skoðaði aðstæður í fangelsinu.


 

Á morgun stendur til að ferðast um borgina í "Cable Car" (gamaldags sporvögnum) og því næst hjóla yfir brúnna frægu.

No comments: