Ég væri alveg til í að koma hingað aftur og eyða aðeins meiri tíma í að upplifa menninguna og tenginguna í Mexikó. Í Albuquerqe eins og öðrum gömlum bæjum er "gamli bærinn" samansafn af gömlum fallegum húsum, litlum krúttaralegum götum og fullt af búðum með alls konar minnjagripi og fallegt handverk mest allt frá frumbyggjum Bandaríkjanna í bland við mexíkanska menningu. Að sjálfsögðu prófaði hópurinn hluta af varningnum sem var til sölu.
Haldið þið ekki að Viðar hafi svo dottið í lukkupottinn, ein af uppáhaldsþáttaröðum hans er einmitt tekinn að hluta upp í Albuquerqe, þetta er eins og flestir vita "Braking Bad" með Bryan Cranston sem fer með aðalhlutverið og lekur Walter White sem er framhaldsskólakennari sem leiðist inná rangar brautir. Við fórum á nokkra þekkta staði úr þáttunum
Matsölustaðurinn þar sem hann hitti yfirmann sinn Gustavo Frigs en hann réði yfir stóru eiturlyfjaveldi
Bílaþvottastöðin þar sem Walter vann aukavinnu og síðar notaði hann stöðina til peningaþvættis
Heimili Walters
Svo að sjálfsögðu bílinn sem hann notaði til framleiðslu á eiturlyfjunum
Áður en haldið var af stað í átt til Denver stoppuðum við í "Diner" hressingarskála "Sam´s 66 Service" og fengum okkur að borða. Þessi Diner er staðsettur við þjóðveg 66 í miðri borginni og er mjög vinsæll hjá okkur ferðamönnunum jafnt sem mótórhjólafólkinu, sem leggur á sig að keyra á hjólum frá Chicago til Los Angeles. Við fengum okkur að sjálfsögðu hefðbundna rétti sem hægt er að kaupa í Dinerum, þ.e. Sloppy Joe og Shake, hmmmmmm
No comments:
Post a Comment