Við byrjuðum á því að labba út á Santa Monica bryggjuna sem er eitt af frægustu kennileitum borgarinnar. Að mínu mati er ströndin í Santa Monica og Venice beach töluvert skemmtilegri og fjörugri strönd en Long Beach. Bryggjan kemur fyrir í fjölmörgum bíómyndum ásamt Parísarhjólinu sem þar stendur. Bryggjan var byggð 1909 og var fyrsti opnunardagurinn 9.september. Í tímanna rás hafa hún dregið til sín fræga og ríka og ekki síður okkur forvitnu túristanna.
Eftir skoðunarferð á bryggjunni gengum við til suðurs eftir ströndinni og áður en við vissum af stóðum við andspænis ógurlegum vöðvabúntum sem pumpuðu upphandleggsvöðva og rassvöðva hver í kapp við annann. Það kemur manni alltaf jafn mikið á óvart hvað fólk er viljugt að sína sig fyrir framan aðra og það á speedo skýlunni.
Í bakaleiðinni fórum við upp á 3ja stræti en þar er mjög glæsileg göngugata með fjölda góðra veitingastaða. Ameríkanar eru miklir keppnismenn og hvar sem maður kemur er kveikt á sjónvarpinu og einhver kappleikur í gangi. Við settumst inná einn slíkan til að næra okkur eftir 10 kílómetra göngu í hlýju og góðu veðri, reyndar var lítið um samræður þar sem ekki heyrðist mælt mál fyrir hvatningar og fagnaðarópum gesta á veitingastaðnum.
Á morgun ætlum við að reyna í fjórða skipti að sjá í návígi frægasta kennileiti LA, Hollywoodskiltið.
Hér koma nokkrir sem við sáum á ströndinni

No comments:
Post a Comment