Wednesday, June 11, 2014

Kínahverfið......og leikfimin

Í San Francisco er stærsta kínahverfi í norður Ameríku. Við fórum góðan göngutúr í hverfinu og urðum margs vísari. Til dæmis sáum við að "heldri" konur stunda afar rólega líkamsrækt með dansívafi, við undileik "sony" kassettuspilara.


 

Asíubúar hafa einnig ólíkan smekk varðandi mat og meðferð á matvælum en flestir vesturlandabúar. Í kjörbúðinni sem við fórum í var hægt að fá alls konar þurrkaða sveppi, grjón og dýr sem ég bara vissi ekki að væru notuð til manneldis.........



 

Svo er alveg ótrúlegt hvað þeir borða mikið af kínakáli.........

 
En eitt skal ég segja ykkur, þeir eru algjörlega á réttri línu hvað varðar bakstur og kökur......


No comments: