Monday, June 16, 2014

Borg englanna.......

.......er mjög nálægt því sem ég hafði ímyndað mér. Hefur ákveðin einkenni sem minna mig á New York, en það sem kom mér á óvart var hvað mikið er af útigangsmönnum hér. Okkur skilst á heimamönnum að útigangsfólk sækist í að koma hingað og er helsta ástæðan að hér er hægt að sofa úti allann ársins hring.


Við tókum túristann alla leið á borgina fórum í skoðunarferð, reyndar var farartækið ekki hefðbundin tveggja hæða strætó heldur tókum við þetta með stæl og tókum limosínu (sama verð og strætóinn)



Við skoðuðum híbýli ríka og fræga fólksins Beverly Hills, verslunargöturnar sem þeir versla á þ.e. "Roadeo drive" reyndar fengum við þær upplýsingar að mikið af fólkinu sem var að spranga um göturnar með poka væri í raun ekki með neitt í pokunum, það er nefnilega hægt að kaupa tóma poka og þá sker maður síg ekki úr þeim sem þarna eru (ferlega gott trikk)


"Walk of Fame" er staðurinn þar sem stjörnunar skína og fáir útvaldir hafa fengið þann heiður að skilja eftir sig handar og fótspor. Þarna voru meðal annars fótspor Arnolds og


 

 Mikið er um listamenn sem eru að reyna að ná í gegn á þessari götu, margir þeirra eru líkir frummyndunum, en aðrir bara alls ekki neitt. Við hittum meðal annars Móses og Chewbaca, tvo Michel Jaksona, Superman og fleiri fræga og ekki fræga.

 




No comments: