Sundlaugagarðurinn er algjört æði, og að sjálfsögðu erum við mætt á húnann um leið og laugin opnaði með sólarolíuna að vopni. Við liggjum eins og skötur á bekkjunum þangað til að okkur er sópað út. Við fórum niður í miðbæ og lentum þar á óvæntri bílasýningu, yngsti bílinn sem sýndur var er árgerð 1973 og elsti bara eldgamall. Strákarnir voru þarna komnir í sína sælgætisbúð, talandi um hestöfl, kramið og krómið.......dísus.....
......á bílasýningu vildi svo vel til að ég rak augun í risastórt auglýsingaskilti sem auglýsti "Dance inferno, the heat is on" nú var engin undankomuleið fyrir Vigga og Valda til að skella sér á almennilegt diskó show.
Ómæ hvað þetta var skemmtilegt, öll gömlu og góðu diskólögin voru tekin, Abba, Bee Gees, Steve Wonder, Donna Summer, Sister Sledge, Village people og fleiri góðir slagarar. Þetta voru einstaklega góðir söngvarar og dansararnir sérstaklega vinsælir hjá karlpeningnum þar sem búningarnir voru afar efnislitlir. Salurinn var beðin um að taka þátt, klappa, syngja og dansa með en undirtektir voru afar litlar fyrir utan aftasta bekkin, og viti menn þar stóðum við og dönsuðum allan tímann. Flestir voru með það á hreinu að við hefðum fengið okkur eitthvað annað en egg í morgunmatinn.
Næsta stopp er San Francisco

No comments:
Post a Comment