Sunday, June 8, 2014

Stórflóð í USA.....

það hlaut að koma að því.......við lendum alltaf í einhverju skemmtilegum (og miður skemmtilegum) uppákomum. Eiginmaðurinn sat og var að tefla við páfann og að skák lokinni sturtar hann niður en viti menn í staðinn fyrir að renna ljúflega niður hækkaði vatnsborðið og hækkað og hækkaði
og á endanum stóð hann í ökkladjúpu vatni.  Eina sem heyrðist var angistaróp frá baðherberginu, nú voru góð ráð dýr, einhver þurfti að hringja niður í lobbý og útskýra hvað hefði gerst. Ég og Ásgeir ákvaðum í skyndi að drífa okkur í laugina þrátt fyrir að komið væri kvöld og skildum Vigga og Viðar eftir í skítnum..........

Ekki leið á löngu þar til Viggi birtist við laugina, hann hafði ekki haft þor í að mæta pípulagningarmanninum þannig að Viðar þurfti að taka á sig sökina .............shit.......(reyndar útskýrði Viðar að það hefði verið pabbi hans sem hefði farið svona með klósettið)

Við eigum myndir, en sennilega eru þær ekki birtingahæfar......þeir sem hafa áhuga síðar meir að sjá ferlíkið geta komið við hjá okkur í myndasýningu........

Góða nótt....

No comments: