Friday, June 20, 2014

Skiltið góða.....loksins

Eins og áður er komið fram þá hefur það reynst þrautinni þyngri að komast að Hollywood skiltinu. Við reyndum í þrígang að komast að skiltinu, en án árangurs. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta getur flækst fyrir manni, við vorum búin að koma auga á skiltið nokkrum sinnum en það var í mikilli fjarlægð, og svo var staðsetningin frekar ruglingsleg. Stundum var skiltið hægra megin í fjallinu, stundum vinstra megin en stundum gátum við ekki einu sinni komið auga á það.

 


Þór Ómar kom okkur loksins á rétta braut þannig að daginn sem við yfirgáfum borg englanna gátum við barið skiltið góða (#$%##....skiltið) augum eins nálægt og heimilt er.




No comments: