Þegar við komum í land í Picton þurftum við að fá annan bílaleigubíl, því ekki má flytja bílleigubíla á milli eyjanna. Nú ökum við um á Mazda 6, ég á bara eftir að finna út hvort það séu ekki einhverjir takkar sem eru óuppgötvaðir. Leiðin lá frá Picton til Monaco í gærkvöldi, hér dimmir enn fyrr og því var orðið myrkur um fimm leytið, skrítið að keyra í niðamyrkri upp og niður, kruss og þvers og enda svo á fallegri upplýstri strönd. Við stoppuðum á leiðinni til að njóta stjarnanna, þvílíkt og annað eins.....aldrei séð svona mikið af stjörnum á himninum.
Þegar við komum til Monaco var eins og við keyrðum inní lítið breskt þorp, húsin öll í "Cottage" stíl þ.e. rauð múrsteina hús á tveimur hæðum, arin í öllum húsum og svefnherbergin uppi á lofti. Alveg rosalega krúttlegt allt saman. Engar pöddur þar :-)
Í morgun lögðum við svo af stað í tréhúsin, þar sem við sitjum nú í vellystingum við arin í svefnherberginu í 10 metra hæð frá jörðu. Við keyrðum úr rjómablíðu af norðurströndinni inní grenjandi rigningu á austurströndinni.
Það kemur þó ekki að sök því það er allt svo hrikalega kósý hér, strákarnir á neðri hæðinni og við með nuddpott út á einni greininni.
Haeri mai
3 comments:
Gott að Tarzan og Jane lýði vel upp í tréinn. Hlakka til að fá ykkur heim. Góða ferð og skemmtun.
Love you long time.
Magga M
Nuddpotturinn hljómar vel, verð ég að segja .....
Hjördís og Stefán
Hæ og innilegar hamingjuóskir með afmælið frá öllum á Grenimel 22.Gaman að fylgjast með kærar kveðjur allir á Grenimelnum
Post a Comment