Á tíma vorum við gengin upp að herðablöðum, við ákváðum bara klára þetta og gengum og gengum og gengum og ........um Sidney í sól og blíðu síðasta daginn okkar þar. Við gengum eftir strandlínunni og að hinu fræga HVÍTA óperuhúsi (sem að sjálfsögðu er hannað af dönskum arkitekt). Ditta.......þú þarft ekki að kvíða neinu, við eigum sennilega 208 myndir af húsinu, innan sem utan.
Við stoppuðum nokkrum sinnum á leiðinni svo Ásgeir gæti æft sig að standa á höndum, sem er nýjasta leikfimisæfingin hans. Að sjálfsögðu þurfti Viggi að hjálpa til, nema hvað...og gekk á höndunum um allann garðinn. Hann vakti mikla athygli, karlinn á fimmtugsaldri með skyrtuna uppá herðablöðum....já þetta er ungt og leikur sér.
Nýja Sjáland bíður okkar......það er farið að hausta.
2 comments:
Mikið rosalega eru feðgarnir öflugir!
Ekki hefði mér getað dottið í hug að Viggi gæti staðið á höndum...hahah
Sniðugur þessi sveppur - virðist virka vel ;)
Þetta getur kallinn ennþá!!! sko minn :) - ég hlakka til að sjá allar myndirnar af óperuhúsinu svo ekki sé minnst á allar hinar líka.
kveðja
Ditta
Post a Comment