Loksins komin til Hong Kong, þetta tók ekki nema 22 klukkutima. Við lögðum af stað um þrjúleitið í fyrrinótt á leið til Sidney, reyndar var seinkun á vélinni en þó ekki nema í 40 mínútur. Út í vél og haldið af stað út á flugbraut.....eftir að hafa verið þar í dágóða stund heyrðist rödd flugstjórans í hátalarakerfinu þar sem hann tilkynnti að við þyrftum að fara aftur upp að flugstöðinni þar sem einhver tæknileg vandamál hefðu komið upp á leiðinni út á braut. Gott og vel, lagfæringin tók stutta stund þannig að heildarseinkun var tæpir tveir tímar.
Vélin sem átti að fara með okkur til Hong Kong átti að fara klukkan 10.45 og því gerði þessi seinkun ekkert til. Þegar við komum út að hliði til að fara til Hong Kong kom í ljós að það var líka seinkun á þeirri vél. Þó ekki nema klukkutíma seinkun. Þegar komið var að því að tékka inn í vélina, mætti flugstjórinn sjálfur í biðsalinn og ávarpaði farþegana. Málið var að vélin sem við áttum að fara með, hafði verið færð yfir á Jóhannesarborg og því þurfti að taka allan farangur og matinn og flytja yfir í aðra vél. Þetta tók sinn tíma því ekki var nema um 500 farþega að ræða. Þegar þessu var loksins lokið kom í ljós að það var einhver bilinun í þessari vél og kalla þurfti til flugvirkja.......ótrúlegt......hann mætti á staðinn, græjaði vélina og við komumst um borð. 2 tíma seinkun...........þegar við höfðum setið dágóða stund út í vél, tilkynnti hin geðþekki flugstjóri okkur að við værum að bíða eftir farþega......bíða eftir farþega...er ekki allt í lagi....hann er í fyrsta lagi tveimur tímum of seinn og lætur síðan 499 farþega bíða eftir sér.
Farþeginn hefur greinilega skilað sér, því að enn og aftur var flugstjórinn kominn í kallkerfið og tilkynnti núna að það þyrfti að taka eldsneytið af vélinni og dæla því á aftur því að vélin var ofhlaðinn af eldsneyti......halló........
Og bensínið komið á.....eins gott....þá getum við......ó nei, aldeilis ekki....nú kom í ljós að flugvirkjar eru í "semí" verkfalli og fóru ekki yfir hreyflana eins og þeir áttu að gera þegar vélin kom inn fyrr um morgunin. OK.....bíðum þá eftir flugvirkjanum.....ekki alveg....hann er ennþá í kaffi og því ákvað flugstjórinn að prófa hreyflana sjálfur (4 stykki) en til þess þurftum við að fara úr vélinni, úff......þetta tók rétt um klukkutíma og því var seinkunin orðin 4 klukkutímar þegar við loksins komumst í loftið. Ferðin var góð, fallegt útsýni á leiðinni og 30 stiga hiti í Hong Kong við lendingu um 21.30.
Myndir dagsins eru teknar í a.m.k. 34 þúsund feta hæð.
2 comments:
Hæ öllsömul það er alltaf gaman að fljúga já já.Spennandi að fá ný lög fyrir Keltana.Hey vissuð þið af jarðskjálftanum´undir ingólfsfjalli,allt í klessu á Selfossi og Hveragerði fólk beðið að vera utandyra í nótt og mikið tjón á húsum og eignum.Þá er nú betra að hristast í flugvél.Kær kveðja Goggi og co á Grenimel
Ásgerður þetta er nú ekki einleikið með þig og flugferðir hehe! En gott að þið komust á endanum á leiðarenda. Hér hriiiisssttttiissst allt allverulega í gær. Jarðskjálfti á 6.2 á Ricther og allt í hassi á suðurlandi. Hafið það gott í Ding Dong.
kveðja
DItta
Post a Comment