Það er engin formleg dagskrá í dag, þannig að við létum vaða á reiðanum og leigðum okkur bíl til skoða okkur um. Sefnan var tekin í bæinn, þar sem við fjárfestum í sólarvörn og áströlskum sundfötum. Það er rétt að það komi strax fram að þegar við lögðum af stað varð smá rifrildi í bílnum þ.e. hvorum megin í hringtorgið, sem er staðsett beint við hótelið, við ættum að fara, það er nefninlega keyrt á vinstri akrein hér í Ástralíu. Síðan var stefnan tekin norður á bóginn, við keyrðum með fram ströndinni í átt að Port Douglas, en meðfram ströndinni eru óteljandi „Spa“ hótel. Greinilega verið að markaðssetja þennan yndislega stað fyrir úttaugaða skrifstofublækur. Við stoppuðum á nokkrum stöðum á leiðinni (sem reyndar var bara rétt um 100 kílómetrar) til að viðra drengina og dífa þeim í sjóinn. Þeir þurftu reyndar að synda innan vissra marka, þar sem búið var að girða af dágott svæði þar sem ekki voru eitraðar marglyttur og gaddaskötur að leita sér að æti.
Útsýnið á leiðinni var hreint frábært, og við sem héldum að það væri bara svona fallegt á Íslandi. Ökumaður bílsins þurfti reyndar að hafa augun á veginum og skoðaði því bara ústýnið af myndunum sem við tókum á leiðinni. Það þarf nefninlega ekki nema nokkrar sekúndur til að gleyma hvorum megin maður á að keyra. Það kom líka nokkrum sinnum fyrir að ökumaður og farþegi í framsæti rugluðumst á sætum, en það var fljótlega leiðrétt.
Við snæddum síðan kvöldverð í Port Douglas í ljósaskiptunum og héldum síðan til baka í niðarmyrki með stjörnubjartan himinn.
Á morgun er stefnt á að fara til Kuranda, sem er þorp í regnskóginum vestan við Cairns.
No comments:
Post a Comment