Fjölskyldan er komin með nýtt áhugamál og það er að taka myndir af salernisaðstöðum. Kata vinkona tekur alltaf myndir af hurðum - hún á myndir af hurðum af flestöllum stöðum sem hún hefur komið á. Í framtíðinni væri síðan kannski hægt að splæsa áhugamyndamálum okkar saman og setja eina klósettaðstöðu á bak við hverja hurð. Góð hugmynd, ikke sant?
Inga, er þetta ekki það sem þú varst að tala um? Þetta er bara út um allt hér í Singapore, er þetta ekki alveg örugglega bara notað til að pissa í?
2 comments:
hehe...jú, þetta er svipað og hjá þeim í Dubai. Ég tók einmitt mynd af því líka, við getum borið saman bækur okkar þegar ferðinni er lokið:-) Ég kynnti mér nú ekkert notagildi gatsins góða, en hefði haldið að þetta væri frekar ópraktísk pissuskál, sérstaklega fyrir karlmenn sem eiga margir hverjir erfitt með að hitta ofan í klósett...en það þarf amk ekki að leita að köngulóm undir klósettsetunni;-)
Það var spurning hvort væri hvítara sandurinn á ströndinni eða þið hahhaha, ég er búin að vera að fylgjast með ykkur, hlakka til að skoða fleiri WC sögur, áfram þið. Hvað er hitastigi þarna hjá ykkur í Ástralíu? Ekki gleyma myndinni af Skippí sem þú ætlar að taka fyrir mig.
Kveðja Unnur
Post a Comment