Komin af stað eftir sunnudagsmorgunverðinn, við ákváðum að taka sveitaveginn á næsta áfangastað sem er Whitianga. Jú jú..við erum búin að skoða kortið og þetta eru 193 kílómetrar...ekki loftlínan heldur akstursleiðin. Mikið svakalega er fallegt hérna, fjöll, eyjar, sjór, vötn, tropical gróður, strandir með mismunandi litum sandi, sumt af þessu minnir okkur á fjörurnar heima. Hluti af leiðinni var eins og við værum að keyra í Ölfusinu, melgresi á aðra höndina og grösugar hlíðar á hina. Ekki versnaði útsýnið þegar á leið, og nú fóru nokkuð margar beygjur að gera vart við sig....ekki nema 369 talsins....að áfangastað...eftir rúmlega 100 beygjur var Ásgeir orðin veikur. Það verður seint sagt um okkur mæðgin að við höfum ekki lagt hönd á plógin hérna þar sem Ásgeir sá um að vökva jarðveginn og ég sá algjörlega um að kanntskera meðfram veginum frá Auckland og allt til Whitianga.
Það eru líka nokkrir sem vita að ég er alveg rosalega heilluð af nýjungum í bílum....líkt og sætahitararnir forðum daga. Allavega, Ásgeir bað mig um að prófa að flauta á kýrnar sem voru um allt við veginn. Við erum á nýrri Toyotu Camry...svaka sportari, með allskonar fítusum í stýrinu. Þar á meðal eru takkar með mynd af hátalar/flautu og plús og mínus merki......og viti menn ég gat hækkað og lækkað í flautunni....að ég hélt. Ég flautaði því bæði hátt og lágt að því að ég hélt....ég áttaði mig þó fljótt , þar sem þeir feðgar voru að missa það af hlátri, að þetta var ekki til að hækka og lækka í flautunni, heldur var þetta til að hækka og lækka í útvarpinu. Ég er ekkert ljóshærð, heldur ættu bílaframleiðendur að hanna svona hækkun og lækkun, því þá getur maður flautað mis frekjulega eftir tilefni.
Eftir 4 tíma akstur erum við loksins á áfangastað...Pési og þeir vita ekkert um það.....þetta tók svona langa tíma því að við keyrðum eftir strandlengjunni í hverja beygjuna á fætur annarri og meðalhraðinn var í kringum 50 km/klst. Við erum í sveitinni og ekkert GSM samband hérna, Internetið er mjög takmarkað.
2 comments:
Ljóska :)
Hjördís
já það þýðir ekkert að vera að reyna að fela þessa ljósku með því að dekkja hárið mín kæra :)...... en þetta er frábær hugmynd hjá þér með flautuna - fáðu SKODA í lið með þér og náðu í einkaleyfið á þetta :)
kveðja
Ditta
Post a Comment