Eins og Hjördís vinkona mín segir, þá er eina leiðin yfir fjallið, yfir fjallið. Hér ættu Íslendingar kannski að taka Ný Sjálendinga til fyrirmyndar, með þeirra vegakerfi yrðum við enga stund t.d. til Ísafjarðar, við færum einfaldlega bara yfir öll fjöllin, í staðinn fyrir að þræða alla firði eins og við gerum í dag. Við vorum að koma frá Whitianga til Taupo sem stendur við stærsta vatn í hér á Sjálandinu, og vorum stanslaust að fara upp á fjöll og niður af þeim aftur en þessu fylgdu reyndar ótal margar beygjur og sveigur, ég get sennilega tekið þátt í rallýinu í sumar. Ef við hefðum þurft að þræða meðfram öllum fjöllunum þá værum við sennilega ennþá á leiðinni.
Whitianga (framburður Fittíanga) er lítið sjávarþorp sem stendur við vestan megin í flóanum "Bay of plenty" eða nægðarflói. Þar snýst allt um ferðamennsku en greinlega er sjávarútvegur aðal atvinnugreinin. Lítið sem ekkert internet samband er á staðnum og er húsakostur ekki alveg eins og við hefðum viljað. Staðarhaldarinn var ósköp indæll, en það var ekki sama hægt að segja um "íbúa" hússins sem við gistum í. Þar nefnilega úði og grúði af alls konar áttfætlingum í ýmsum stærðum og gerðum okkur til mikillar armæðu. Jú, víst reyndi ég að vera jákvæð........fyrri nóttina svaf ég í öllum fötunum þó svo að Viggi hefði gert sitt besta í að myrða þessa óvinsælu "íbúa". Það reyndar hvarflaði að mér að yfirgefa staðinn degi fyrr en áætlað var en ég beit á jaxlinn og notuðum við daginn til að skoða okkur um, spila "paintball", skjóta af bogum og fara nokkra hringi á fjórhjóli. EN, við hefðum betur látið okkur hverfa því að "íbúarnir" höfðu elfst til muna þegar við komum til baka um kvöldið og fengið liðsauka til að hrella okkur enn meira. Þegar við ætluðum að elda okkur dýrindis kvöldverð (vorum búin að fara í búðina, velja flottar steikur og meðlæti) var frekar stór kónguló sem gætti eldavélarinnar, við töldum okkur geta náð tökum á eldavélinni með því að kremja kóngulóna í eldhúspappír, en hún var of snögg.....hvarf á bak við eldavélina eins og elding. Þá var ekki um annað að ræða en að spreyja eitri allt um kring og reyna að drepa helv......
Eftir stutta stund birtust fálmarar upp með eldavélinni, er hún gengin aftur.........nei, nei þetta er sko engin kónguló......heldur er þetta feitur og ógeðfeldur kakkalakki.........langar einhvern í steik?

Næstu nótt sváfum við öll í fötunum okkar nema Viggi.....hann elskar pöddur....nei grín....hann var eini sem þorði að leggjast til hvílu án þess að vera í brynju og án þess að spreyja yfir sig pöddueitri. Ég get ekki mælt með þessum gististað, en stelpur, þetta var verra en Bergen, miklu verra.
Þreytum ykkur ekki meira með pöddutali, við eigum góðan dag framundan - meira um það síðar. Hér fyrir neðan er nýjasta draumatækið hans Vigga, spurning hvort það sé "volume" takki á flautunum.
7 comments:
oj bara..... Inga hefði sem sagt betur sent þér lista yfir þessa ógeðfelldu fjórfætlinga á Nýja Sjálandi líka.... þið eruð bara Hetjur segi ég :) ég væri farin hahahah!
kveðja
Ditta
hí hí hí, hlaut að koma að því að þið kynntust skorðdýrunum þarna fyrir sunnan miðbaug, mátti vita að það yrði hjá Kiwiunum, þeir eru svolítið spes;-) Gangi ykkur vel að rata upp og niður fjöllin, ekki furða að þið séuð (hí hí) pínu 'never never', í fyrsta lagi eruð þið á hvolfi, bíllinn snýr allur öfugt og svo eru allir vegir eintóm hringavitleysa! cheerio mateys;-)
Glætan að ég hafði borðað þarna hvað þá sofið þarna, sama þótt ég hefi verið í fötunum, ég hefði verið fljót upp og niður fjöll fótgangandi ef ég sæi svona pöddur :) þoli mjög illa svona lagað... ojojoj ... mín versta hræðsla... !!
kv. Kidda
Er þau ástralíu kvöddu,og héldu þaðan brott,þau hittu stóra pöddu,með langt og loðið skott.Ég hefði viljað vera viðstaddur og sjá þetta.Þetta er arfafyndið,svona eins og grískur harmleikur.Hjólið hans vigga er helv,flott á myndinni.óli Biggi er búinn að kaupa eitt stykki yamaha eitthvað xlþyrzc svo frændurnir ættu að geta tekið rúnt kv Goggi
VERRA EN BERGEN?????....kennir maður þér ekkert á ferðalögum????
FARA Á ANNAÐ HÓTEL !!!!!
Ég hélt hingað til að það væri ekkert verra en lífsreynslan Bergen, nógu andsko... tuðuðið þið mikið. Hefði skilið ef það hefðu verið sexfætlingar í líkingu við þetta, hm.....
Þessi sem segir að það sé bara ein leið yfir fjallið og hún sé yfir fjallið
Hin fjögur fræknu fóru í ferð.
Um þessa ferð ég segja verð,
pöddur, grín og betri vín,
ekki borða villisvín.
(Fáið ykkur frekar kengúru, nammi nammi namm, erum búin að smakka kengúrukjöt)
Kveðja frá kryddkónginum sem var að keyra fyrstu krukkurnar af Bezt á borgarann í búðir í dag :)
Post a Comment