Saturday, May 24, 2008

Monaco - Nelson

Komin í betra samband. Í gærkvöldi komum við til Monaco, Nelson á norðurströnd suðureyjunnar, eftir að hafa siglt í þrjá klukkutíma með "Herjólfi" af stærri gerðinni. Siglingin var að meiri hluta til inní mjóum og djúpum fjörðum, afar fallegt og athyglisvert. Veðrið á leiðinni var ekki uppá sig besta til myndatöku, rok, rigning og þoka. Þið verðið því bara að ímynda ykkur fegurðina sem blasti við (ef skyggnið hefði verið betra).

Þegar við komum í land í Picton þurftum við að fá annan bílaleigubíl, því ekki má flytja bílleigubíla á milli eyjanna. Nú ökum við um á Mazda 6, ég á bara eftir að finna út hvort það séu ekki einhverjir takkar sem eru óuppgötvaðir. Leiðin lá frá Picton til Monaco í gærkvöldi, hér dimmir enn fyrr og því var orðið myrkur um fimm leytið, skrítið að keyra í niðamyrkri upp og niður, kruss og þvers og enda svo á fallegri upplýstri strönd. Við stoppuðum á leiðinni til að njóta stjarnanna, þvílíkt og annað eins.....aldrei séð svona mikið af stjörnum á himninum.


Þegar við komum til Monaco var eins og við keyrðum inní lítið breskt þorp, húsin öll í "Cottage" stíl þ.e. rauð múrsteina hús á tveimur hæðum, arin í öllum húsum og svefnherbergin uppi á lofti. Alveg rosalega krúttlegt allt saman. Engar pöddur þar :-)




Í morgun lögðum við svo af stað í tréhúsin, þar sem við sitjum nú í vellystingum við arin í svefnherberginu í 10 metra hæð frá jörðu. Við keyrðum úr rjómablíðu af norðurströndinni inní grenjandi rigningu á austurströndinni.



Það kemur þó ekki að sök því það er allt svo hrikalega kósý hér, strákarnir á neðri hæðinni og við með nuddpott út á einni greininni.

Haeri mai

3 comments:

Anonymous said...

Gott að Tarzan og Jane lýði vel upp í tréinn. Hlakka til að fá ykkur heim. Góða ferð og skemmtun.
Love you long time.
Magga M

Anonymous said...

Nuddpotturinn hljómar vel, verð ég að segja .....

Hjördís og Stefán

Anonymous said...

Hæ og innilegar hamingjuóskir með afmælið frá öllum á Grenimel 22.Gaman að fylgjast með kærar kveðjur allir á Grenimelnum