Í gærkvöldi fórum við niður úr trénu og borðuðum á veitingahúsi hér á staðnum dýrindis kvöldverð. Ný Sjálenskt lamb, "Hjerte plomme" eins og Dungal finnst best og strákarnir fengu sér spaghetti með apakjöti (smáapar sem eru ræktaðir hér í trjánum).
Þetta minnir mig nú reyndar svolítið á Húnavelli, þ.e. það er allt svo persónulegt hérna, eigandinn sat með fjölskylduna sína og borðaðaði með okkur (býr reyndar í San Fransisco er hér til að ráða sér nýjan hótelstjóra, hhmmm), kokkurinn spjallaði við stákana á meðann hann (hún) eldaði og þjóninn sagði okkur sögur af sjálfum sér og fjölskyldu.
Í morgun, eftir að hafa farið í sturtu með útsýni yfir kindahópinn, fórum við svo niður á strönd hér við þorpið að skoða sellátrin og albatrossana, en sá fugl hefur stærsta vænghafið af þeim fuglum í heiminum sem fljúga, ...sem sagt risastór mávur.
Selirnir (sæljónin) voru alveg ótrúlega gæfir, þegar við ætluðum að ganga eftir göngustígnum kom í ljós að þeir höfðu tekið hann fyrir sig og lágu þar og hvíldu sig. Við hefðum sennilega getað klappað þeim ef við hefðum viljað koma einhent heim. Hér er líka mjög mikið af hvölum af öllum stærðum og gerðum og mörgæsum, allt í túnfætinum. Gerist ekki betra.
Love it!
4 comments:
dúddi minn hvað þetta er geðveikislega flott..... þið eruð bara eins og Robinson Cruso & family, búið í tréhúsi hehe!
Njótið vel
kveðja
Ditta
Það fer ekkert á milli mála að ég þarf að skella mér til NZ og á austurströndina í Oz...best að byrja að spara strax:-)
Hæ Ásgeir og Viðar og takk fyrir póstkortið það var bara æði. Eru þíð búnir að sjá svona stóran krókódíl þarna?
kveðja
Hildur Ása
Ég væri alveg til í að prufa þetta baðkar :) geggjað útsýni ...
kv. Kidda
Post a Comment