Sunday, May 25, 2008

Hapuku lodge - "duse pont"

Orðlaus......þetta er frábært staður - tólf stig, ekki spurning. Hvað finnst ykkur um að vakna við fuglasöng, líta út um gluggann á snævi þakin fjöllin á aðra höndina og með útsýni yfir hafið á hina höndina (þurfum ekki einu sinni að fara fram úr rúminu, því það eru flennistórir gluggar allan hringinn). Ólífuakrar allt um kring og kvöldmaturinn í kvöld töltandi um túnið hér fyrir neðan? Ef einhver ykkar ætlar í framtíðinni til Nýja Sjálands þá er þetta staður sem þið verðið að koma við á http://www.hapukulodge.com/kaikoura/



Í gærkvöldi fórum við niður úr trénu og borðuðum á veitingahúsi hér á staðnum dýrindis kvöldverð. Ný Sjálenskt lamb, "Hjerte plomme" eins og Dungal finnst best og strákarnir fengu sér spaghetti með apakjöti (smáapar sem eru ræktaðir hér í trjánum).


Þetta minnir mig nú reyndar svolítið á Húnavelli, þ.e. það er allt svo persónulegt hérna, eigandinn sat með fjölskylduna sína og borðaðaði með okkur (býr reyndar í San Fransisco er hér til að ráða sér nýjan hótelstjóra, hhmmm), kokkurinn spjallaði við stákana á meðann hann (hún) eldaði og þjóninn sagði okkur sögur af sjálfum sér og fjölskyldu.


Í morgun, eftir að hafa farið í sturtu með útsýni yfir kindahópinn, fórum við svo niður á strönd hér við þorpið að skoða sellátrin og albatrossana, en sá fugl hefur stærsta vænghafið af þeim fuglum í heiminum sem fljúga, ...sem sagt risastór mávur.


Selirnir (sæljónin) voru alveg ótrúlega gæfir, þegar við ætluðum að ganga eftir göngustígnum kom í ljós að þeir höfðu tekið hann fyrir sig og lágu þar og hvíldu sig. Við hefðum sennilega getað klappað þeim ef við hefðum viljað koma einhent heim. Hér er líka mjög mikið af hvölum af öllum stærðum og gerðum og mörgæsum, allt í túnfætinum. Gerist ekki betra.



Love it!

4 comments:

Anonymous said...

dúddi minn hvað þetta er geðveikislega flott..... þið eruð bara eins og Robinson Cruso & family, búið í tréhúsi hehe!
Njótið vel
kveðja
Ditta

Anonymous said...

Það fer ekkert á milli mála að ég þarf að skella mér til NZ og á austurströndina í Oz...best að byrja að spara strax:-)

Anonymous said...

Hæ Ásgeir og Viðar og takk fyrir póstkortið það var bara æði. Eru þíð búnir að sjá svona stóran krókódíl þarna?
kveðja
Hildur Ása

Anonymous said...

Ég væri alveg til í að prufa þetta baðkar :) geggjað útsýni ...
kv. Kidda