Dagurinn er runninn upp, það er engin smá spenningur í gangi. Við erum á leiðinni í „Dreamworld“ og „White Water World“ sem eru skemmtigarðar hér á gullnu ströndinni. Það er um margt að velja enn þessi garður varð ofaná því að það er bæði hægt að fara í tæki (fyrir adrenalínfíkla), skoða alls konar dýr, þó mest allt Áströlsk og svo síðast en ekki síst þá er hægt að fara í hinar ýmsu vatnsrennibrautir....fyrir byrjendur sem lengra komna.
Allir erum með vörn 50 þar sem sólin skín alveg til klukkan 5.10 en þá er sólsetur. Já, það er orðið niðamyrkur hér korter yfir fimm á daginn.
Smá fróðleikur fyrir þá sem finnst gaman af tölum :-) það eru 26.500 kílómetra akstur hringinn í kringum Ástralíu á þjóðvegi 1. Og það eru 34 þúsund kílómetrar sem þið þurfið að leggja á ykkur ef þið viljið sigla í kringum Ástralíu. Þeir sem hafa áhuga hafið samband við okkur þegar við komum heim því við viljum endilega slást í för með ykkur.
Á morgun verðum við komin til Sidney...vonandi er betri Internet tenging þar....hér á maður greinilega bara að njóta veðursins og hvíta sandsins.
5 comments:
Er ekki bara spurning um að vinna nokkrar sölusamkeppnir í viðbót og taka svo bakpokaferðalanginn (lúxusbakpokan að sjálfsögðu,ekkert minna en 4 stjörnur) hringinn í kringum Oz? Ég er til amk, ég er með meirapróf í vinstri umferð og skal glöð taka að mér að vera driver...amk í borgunum;-) Góða ferð til Sydney!
Gaman að fylgjast með ykkur, hefði gjarnan heldur viljað vera með , þar sem eldri borgarar virðast alveg hafa plummað sig. Loksins
held ég að ég komist í gegnum þetta
að senda kveðjur , eftir að hafa leitað hjálpar, því auðvitað þurfa eldri borgarar hjálp við eitt og annað. Annars bestu kveðjur og óskir og hafið það alltaf sem best.
Mamma
Hefði alveg verið til í að vera með
ykkur i sundlauginni og kæla mig, pína frændur mína..og bróður minn!!
Búið að vera 25 stiga hiti frá því að mamma fór heim, hún hefði betur verið
aðeins lengur og notið blíðunnar.
Kveðja frá okkur öllum í Svíþjóð.
Okkur á horninu finnst að Viggi eigi að fá sér nokkra skammta af maurum (próteini) og massa sig dáldið upp, ekki nema þetta í kringum mittið sé hugsað sem björgunarbelti????
He he......
Kveðja
Hjördís og Stefán
Viðar og ásgeir... þið eruð töffara....
ég held að ég gæti aldrei haldið mér á sjóbretti...
vá hvað mig langar að vera þarna í :(
farinn að sakna ykkar ....
það var alveg MAGNAÐ að vera einn heima í svona 2 vikur... núna er það ekkert jafn spennandi og ég hélt ehehhe
Kv. Theodór Stóri bró
Post a Comment