Sunday, June 17, 2012

Á syðsta odda Norður Ameríku

Hér erum við á syðsta odda Norður Ameríku á Key West, en þar eru einungis 90 mílur til Kúbu.



þetta er hreint ótrúlegur staður, húsin, fólkið, menningin og andrúmsloftið er ólýsanlegt. Eina sem er ákveðið er að við ætlum að kaupa okkur hús hér í framtíðinni (borgum bara seinna).




Hér ganga hænur (já landsnámshænur) frjálsar um götur með afkvæmi sín, það er ekki hægt að segja að kjúklingurinn verði mikið ferskari.



Við fórum að sjálfsögðu á ströndina og syntum í sjónum. Mikið dýralíf var í sjónum, allt frá mjög litlum fiskum uppí stóra fiska og syntu þeir í rólegheitum í kringum okkur.




Svo fyrir þá sem ekki vita þá er líka betra að vera í sokkunum þegar maður snorklar...........




1 comment:

Anonymous said...

Kominn heim, flugið var stutt og þægilegt! Það væri samt gott að geta tannað smá við laugina!! Hlakka til að sjá ykkur aftur, takk fyrir mig enn og aftur, þetta frí var alveg meiriháttar!! Koss og knúss,

Róbert loðni! :)