Sunday, June 3, 2012

Afsakið að ég hef ekki náð að blogga....

.......málið er nefnilega það að mágur minn og svilkona týndust annað kvöldið okkar hér í Kissimmee.  Við leituðum nokkra klukkutíma að þeim, en sem betur fer skiluðu þau sér til baka að sjálf um nóttina en þá höfðu þau ekið um allt hverfi í leit að húsinu okkar. Sem betur fer er ferðaklósett og kæliskápur í öllum amerískum bílum þannig að þetta bjargaðist allt saman.


Fyrir ykkur sem veltið fyrir ykkur af hverju þau notuðu ekki símana sína til að hafa samband við okkur eða staðsetningartækið í bílnum þá voru þau ekki með neitt slíkt.....sumum er bara ekki ..........

Allir komnir í hús og voða glaðir

No comments: