Það kom að sjálfsögðu fyrir að aðrir í hópnum væru með "höfuðverk" og höfðu því "löglega" afsökun fyrir að fara ekki í tækin..........og að sjálfsögðu urðum við að hafa einhvern á videóvélinni til að festa ferðirnar á filmu
Þó svo að við höfum stundaðað adrenalíngarðanna grimmt þá höfum við líka farið í keilu og minigolf . Ekki er hægt að segja annað en skemmtilegir og áhugaverðir skotstílar hafi sést á brautunum og má nefna þennan hér fyrir neðan en hann nefnist "kúkað á brautina"
Nokkur góð fögn festust líka á filmunni
og sumir hreinlega stukku út úr rammanum
Einnig sáumst ótrúlega góð tilþrif á golfvellinum, þrisvar sinnum náði hópurinn að fara holu í höggi, en það vildi svo óheppilega til að það náðist ekki á filmu en ég segi ykkur það satt þetta voru holur í höggi
No comments:
Post a Comment