Saturday, June 16, 2012

Klippt og skorið......

það sprettur allt miklu betur hér í landi frelsisins og tækifæranna. Buxnatölurnar spretta af ein af annarri, skyrturnar skreppa saman og hárið fýkur.....


Gúa hárgreiðslumeistari hefur veg og vanda að því að hafa hópinn vel snyrtann, og fyrstur var Róbert enda hafði hann ekki komist til rakara í langan tíma. Fyrstu fauk skeggið og svo bartarnir og að síðustu hárið.



Og svona er útkoman......hreint ómótstæðilegur ungur drengur sem á framtíðina fyrir sér




Þá var komið að Ásgeiri, honum veitti heldur ekkert af kantskurði



Svo sætir bræður.............

No comments: