Tuesday, June 5, 2012

Það er kviknað í....



Svei mér þá það gerist varla betra en þetta. Eftir að hafa tanað eins og líkaminn þoldi var farið í verslunarleiðangur. Walmart, Best buy, Walmart, Payless shoe, Walmart, borða, Walmart og svona gekk þetta fyrir sig alveg til klukkan 23 en þá lokar mollið. Við skelltum okkur á Japanskan stað og fengum alveg geðveikt gott Sushi og strákanir fengu sér ramen sem er eldað fyrir framan viðskiptavininn. OMG....hvað þetta var góður matur.






Ásgeir skellti sér í hlutverk kokksins og steikti nokkur egg á Japanska vísu.  Það væri ekki í frásögu færandi nema að þetta voru eðluegg sem eru víst mjög góð fyrir augun.


Í verslunnarferðinni létum við náttúrulega plata inná okkur alls konar vörur sem seldar eru í sjónvarpsmarkaðnum. Ég keypti til dæmis spliff donk og gengju og Gúa fjárfesti í sjálfvirkum skóreimara.


Rúsínan í pylsuendanum eru nýju sígaretturnar hennar Gúu, þær eru rafmagns og menga ekki neitt. Allt í rétta átt.



Þangað til næst, lifið heil......

1 comment:

inga Heiddal said...

Hey kúl að þið séuð í Kissemee hverfinu þar verð ég um næstu áramót... Takið fullt af myndum sem ég get skoðað gaumgæfilega...
ha de så bra alle sammen. Kv INGA Gúuvinkona!!!