Við lögðum af stað eftir hádegi áleiðist til Miami, en það er stórborg á suðurodda Flórída. Í borginni og nágrenni búa um fimm milljónir manna og þar býr einmitt Guðjón frændi, Patty og börnin þeirra Kristín, Adda, Viktor og Magnús og svo líka hundurinn Lucky. Við vorum komin til Guðjóns rétt fyrir átta og borðuðum kvöldmat á Ítölskum stað í næstu götu. Takk Guðjón fyrir frábærar móttökur það var rosalega gaman að koma til ykkar.
Að venju vorum við komin á fætur snemma til að geta nýtt morgunin til að skoða Miami og þá sérstaklega "south beach" í von um að hitta Dexter og Horatio úr CSI Miami þáttunum. Því miður voru þeir báðir uppteknir þennan morgunin þannig að við létum okkur nægja að kíkja á skvísurnar í Miami Ink.......nei,það fékk engin tattoo. Sumir voru þó þreyttari en aðrir og misstu úr hluta af skoðunarferðinni .........
Þessi borg heillaði okkur töluvert meira en New Orleans þó að hún sé mjög áhugaverð heim að sækja.Miami óx hratt á árunum eftir síðari heimstyrjöldina og íbúafjöldinn tók mikinn kipp eftir bylgtinguna á Kúbu 1959. Tveir þriðju hlutar borgarbúa eru af rómönskum ættum og í borginni eru þrjú viðurkennd opinber tungumál, spænska, enska og haítí kreólska.
Hér er samfélagið meira spánskt en bandaríkst, börnin hérna drekka kaffi frá unga aldri (ég er ekki að grínast), hér er Viktor búin að fá cappchino. Viktor er er sjö ára alveg að verða átta, kátur og hress og sennilega er það kaffinu að þakka.
No comments:
Post a Comment