Eins og þið vitið notum við Priceline.com mjög mikið og höfum bókað hótel, flug og bílaleigubíla í gegnum tíðina og erum orðin platinum viðskiptavinir. Platinum viðskiptavinum er stundum boðin tilboð sem standa öðrum ekki til boða, í þetta sinn fengum við tölvupóst um að gista á herragarði í Georgetown í Washington. Það bara gleymist að láta okkur vita að húsið og innanstokksmunir séu frá árinu 1766 og aðeins farið að rykfalla og fúna. Það er spurning hvort platinum þýði allt í plati!
Við létum okkur þó hafa það, rúmin eru svolítið lítil og hörð en morgunmaturinn var fínn.
Mæli sérstaklega með þessari bókunarsíðu
www.priceline.com og ævintýrin munu hellast yfir ykkur.
No comments:
Post a Comment