Það er ekkert smá fallegt hérna, sjórinn er tær, sandurinn hvítur og allir eitthvað svo sólbrúnir og sætir.
Svo var það sólsetrið sem var ómótstæðilegt, við fórum ásamt öllum hinum sem hér eru niður á höfn til að fylgjast með því þegar sólin skríður niður fyrir sjóndeildarhinginn. Á sama stað var brúðkaupsveisla í fullum gangi og mikið fjör. Róbert bauðst til að vera "the wedding singer" og syngja lagið "please release me, let me go" sem Engilbert Humberdinck gerði ódauðlegt. Því var ekki sérlega vel tekið enda var þetta brúðkaup.
Dagurinn endaði síðan á afmælismat á Hard Rock mjög gott :-)
Góða nótt !!






No comments:
Post a Comment