Monday, June 4, 2012

Tanað í drasl

Hér er keppst við að ná lit á kroppinn, fyrsta morgunin var Gúa komin á fætur um klukkan sex, komin út við laug skömmu síðar. Við Viggi vöknuðum ekki fyrr en rúmlega átta og því erum við töluvert ljósari á hörund. Við munum hins vegar gera allt sem í okkar valdi stendur til að ná upp þessum litamun, við fórum meira að segja í Walmart núna rétt áðan til að ná okkur í brúna sólarolíu.





Íslendingar eru ekki nema rúmlega þrjú hundruð þúsund talsins en þrátt fyrir það voru nokkur kunnuglega andlit og bleikir kroppar hér í garðinu í morgun. Þetta á sannarlega ekki við um okkur því að við notum ekki sólarvörn, við notum bara olíu og mikið af henni.

Til að ná fram góðu tani innanvortis er ágætt að skola niður nokkrum bjórum á sundlaugabakkanum.





No comments: