Svei mér þá það gerist varla betra en þetta. Eftir að hafa tanað eins og líkaminn þoldi var farið í verslunarleiðangur. Walmart, Best buy, Walmart, Payless shoe, Walmart, borða, Walmart og svona gekk þetta fyrir sig alveg til klukkan 23 en þá lokar mollið. Við skelltum okkur á Japanskan stað og fengum alveg geðveikt gott Sushi og strákanir fengu sér ramen sem er eldað fyrir framan viðskiptavininn. OMG....hvað þetta var góður matur.
Ásgeir skellti sér í hlutverk kokksins og steikti nokkur egg á Japanska vísu. Það væri ekki í frásögu færandi nema að þetta voru eðluegg sem eru víst mjög góð fyrir augun.
Rúsínan í pylsuendanum eru nýju sígaretturnar hennar Gúu, þær eru rafmagns og menga ekki neitt. Allt í rétta átt.
Þangað til næst, lifið heil......
1 comment:
Hey kúl að þið séuð í Kissemee hverfinu þar verð ég um næstu áramót... Takið fullt af myndum sem ég get skoðað gaumgæfilega...
ha de så bra alle sammen. Kv INGA Gúuvinkona!!!
Post a Comment