New Orleans er töluvert öðruvísi en að við höfðum gert okkur í hugarlund. Við höfuðum sé myndir af láreistum tréhúsum en þannig er bara partur af henni. Þetta er frekar óhrein borg, mikil fátækt og mikið af óreglufólki. Við hefðum þó ekki viljað missa af þessari upplifun.
Við komum síðan heim til Möggu um kvöldmatarleitið, þar töfraði hún fram pizzur handa okkur í kvöldmatinn og Fred pabbi Möggu hafði keypt afmælistertu sem við gæddum okkur á í dessert.
Stefnan er tekin á Kissimmee, en þar verðum við næstu vikur og eigum von á Gúu, Tóta og Hilmi Þór, en þau verða með okkur í FIT húsinu.
Gúa, þú þarft bara að koma með tómar töskur og sólarvörn. Tóti taktu hlaupaskónna með, þeir gætu komið sér vel í búðarrápinu. Ég er búin að græja tösku og innkaupapokapall aftan á bílinn hjá okkur.
Við hlökkum rosalega til að fá ykkur og eyða fríinu með ykkur.


3 comments:
Ohh takk sömuleiðis!
Ætti þá kannski að pakka vörninni núna snöggvast, svo ég gleymi nú engu!
Þetta er svo skemmtilegt! Er að bilast ú tilhlökkun..:)))
ást og kossar, sjáumst á morgun!
Ég er búinn að pakka! 2 nærbuxur fyrir báðar vikurnar, 2 netaboli
stuttbuxur og hlaupaskó!
Hlakka til að sjá ykkur kv Tóti
Vá hvað það hlýtur að vera gaman hjá ykkur! Allir mættir saman og spennandi staðir....njótið þess í botn. Það vantar bara Viðar frænda og co....(hóst). Við fylgjumst nánar með og hlökkum til að heyra í ykkur á Skypinu þegar þið komið heim.
Viðar og co.
Post a Comment