Happy hour er búin og klukkan að verða sjö, við gerum fastlega ráð fyrir því að maurarnir muni skila sér annað hvort upp eða niður fljótlega.....assgoti gott svona glaðir stundir á barnum.
Haldið á stað á vit forfeðranna í Tjapukai til að borða (ekki maura). Við ákváðum að leigja okkur bíl, svo við gætum notað hann á morgun til að komast niður á strönd, það kostar um 39 Aus$ að leigja bíl í sólarhring. Smá upprifjun á vinstri umferð, og líka það að stefnuljósin eru hægra megin og rúðuþurrkurnar vinstra megin, en gírstöngin er nákvæmlega eins og hjá okkur í hægri umferð, pínu ruglingslegt. Fyrir vikið hef ég vinkað ansi oft með rúðuþurrkunum í stað þess að gefa stefnuljós ...en þetta verður komið á hreint áður en við förum til Nýja Sjálands.
Kvöldið hófst með fordrykk, já já já....og svo var komið að því að ganga einhver ár aftur í tímann og kynnast siðum, dönsum og túarsiðum frumbyggjanna. Þetta var allt saman mjög áhugavert, við tókum þátt í athöfn sem endaði með að kveiktur var eldur og þá var hægt að hefja skemmtunina. Hún stóð í tvo klukkutíma, söngur (þar sem ekki allir voru alveg á „pitchi“) og dans (flestir þó í takt). Maturinn varð þó reyndar meira svona alþjóðlegur....og eftirréttirnir voru alveg dýrðlegir...dýr-legir(maurapæ með rjóma).
Birrí birrí
2 comments:
Það hefur sem sagt ekki verið boðið upp á 'witchitygrubs' lirfur að hætti infæddra í stórveislunni? og ekki heldur "'roo-on-a-spit"? Njótið strandarinnar á morgun og ekki gleyma að "slip, slap, slop" svo þið endið ekki sem brunarústir:-)
Prótein er alltaf gott í hófi en við í Kringluútibúi erum sko að fara að borða miklu betra og bragðbetra prótein : dýrindis marsipan köku a la Ágústu Heru nammmmmm
Post a Comment