Friday, May 30, 2008

Tveir dagar, allt of stuttur tími


Vá......þvílíkt og annað eins....við höfum komið til nokkura stórborga í heiminum en Hong Kong er engu lík. Manni líður bara eins og sveitamanni hér í stórborginni. Öll auglýsingaskilti í ofurstærð, ég skil það nú eiginlega ekki, því maður þarf virkilega að hafa fyrir því að sjá allt skiltið í einu. Fyrir utan það þá eru skiltin hengd ofaní hvert annað á ensku og kínversku til skiptis. Tveir dagar eru hreinlega allt of stuttur tími til að geta lesið á öll skiltin :-)



Hong Kong er borg fyrir nokkra vini mína ;-) þó sérstaklega þá sem eru fyrir flott vörumerki s.s. Burburry, Channel, Kanel og hvað þetta heitir nú allt. Allt á gjafaprís. Þið sem þetta á við, drífið ykkur á netið og bókið ykkur ferð hingað fyrr en seinna.



Í morgun vorum við nátttúrulega komin á lappir fyrir allar aldir til að nýta daginn, við fórum í svokallaðann "Hong Kong Island Tour" í þeim túr er farið á þann hluta Hong Kong sem er á eyjunum hér við meginlandið. Þar eru skartgripaframleiðendur með verksmiðju, sem við náttúrulega heimsóttum, frægur götumarkaður (þar sem við versluðum bara pínu lítið, mér finnst frekar erfitt að prútta við fólk) og síðast en ekki síst er útsýnispallur Hong Kong manna (og kvenna) út á eyjunum. Þegar þangað var komið var allt grátt.....við vorum komin uppí skýin á ný og því frekar takmarkað útsýni nema rétt fram fyrir nefið á manni.


Í Hong Kong búa 7 milljón manns, og flestir búa í háhýsum í litlum íbúðum. Margir hverjir leigja af sveitafélaginu því að fasteignaverð er mjög hátt hérna. Hong Kong er byggð á gamalli eldstöð og því eru flest húsin hér í mjög miklum halla (líka blokkirnar), verslunarsvæðið er þó mest allt á jafnsléttu. Þegar menn tala hér um tímabil, miðast allt við fyrir og eftir SARS (fuglaflensuna), þetta er bara eins og í Eyjum, fyrir og eftir gos. Hagkerfið hérna tók mjög mikla dýfu eftir SARS flensuna en virðist vera búin að ná bottninum og einhver smá vottur fyrir hagsveiflu uppá við :-) Fasteignaverð féll um allt að 40% og atvinnuleysi jókst þar sem ferðamannastraumurinn virtist streyma í aðrar áttir. Bátafólk er ennþá mjög algengt hér við Hong Kong og eru hýbýli þeirra ekki mjög vistvæn.

Eitt sem kom okkur á óvart, en það er að oft á tíðum sjáum við, bæði í fréttum og í blöðum, asíubúa með andlitsgrisju til að verjast menguninni en svo hangir maturinn þeirra, bæði hrár og eldaður út um allar götur uppfullur af svifriki og annarri mengun. Svo éta þeir hann með bestu list....já, það er margt skrítið í kýrhausnum.





Eins og flestir vita þá eru kínverjar þekktir fyrir mikil mannvirki, hvort sem um brýr eða blokkir er að ræða. Við rákumst á nokkra staði þar sem verið var að vinna við og eitt áttu þeir allir sammerkt en það er að vinnupallarnir þeirra eru úr bambusprikum....það mætti seint bjóða Viðari frænda að fara uppí þá stillasa.



Smá getraun í lokin og óskast svör send á bloggið: Hvernig eru kínverskar pylsur "hot dogs"?

4 comments:

Anonymous said...

http://www.flickr.com/photos/cherrycan/300649494/

hér má sjá mynd af chinese hot dog - vann ég vann ég......:)
kveðja
Ditta

Anonymous said...

Nei, því miður...þetta er ekki chinese hot dog. Fleiri með tillögur?
Fjögur fræknu

Anonymous said...

hmmm...ég sé auðvitað bara fyrir mér kátan langhund í pylsubrauði með tómat, sinnepi og steiktum, kannski smá soya og hrísgrón með til að fá kínverskan blæ á herlegheitin:-) annars gæti þetta verið 'trick question' og fjallað um árið 2006, sem var ár hundsins og eldsins skv. kínversku dagatali og þ.a.l. hot dog!

Anonymous said...

hmmm ....eitthvað jukk með hrísgrjónum.

Jæja Ásgerður ég vona að þú sért örugglega búin að fylla eina tösku í dag:-) Ég væri allavega búin að því ....og aðra á morgun ...

Kveðja
Maja