Tuesday, May 20, 2008

Taupo

Þvílík náttúrufegurð, hér eru hverir og eldfjöll og hreint ekki ólíkt því sem við þekkjum heima. Við fórum í morgun á jarðhitasvæði sem kallast "Craters of the Moon" Gígar tunglsins.


Það var ekki laust við að manni liði eins og maður væri staddur í Haukadalnum, berjalyng, hveralykt, hólar og hæðir og kjarr allt um kring. Svæðið hefur verið gert aðgengilegt fyrir ferðamenn og því gátum við sprangað um svæðið og svo til horft ofaní gígina. Þeir kalla þetta líka Geysir, en þeirra gýs ekki þó hann sé töluvert stærri en okkar.


Seinnipartinn nýttum við til þess að láta fara vel um okkur í "Græna Lóninu". Græna lónið er baðsvæði þar sem hveravatnið er nýtt til að stjana við gestina. Þvílíkur unaður! Heitu pottarnir eru reyndar kaldari en laugarnar sjálfar....sennilega einhver misskilningur þar á ferðinni. Græna lónið bíður líka uppá alls konar "Spa" meðferðir sem ég nýtti mér í dag...........alveg yndislegt, á meðan léku drengirnir sér í laugunum.


Á morgun munum við halda suður á bóginn, til Wellington sem er borg syðst á norður eyjunni.

3 comments:

Anonymous said...

Ótrúlega líkt Heiðmörkinni og Íslandi yfirleitt !

Hjördís

Anonymous said...

Hérna eru þið kannski bara komin heim hehehe! Einn dagur í að þú verðir "Fullorðin" Ásgerður :)
kveðja
Ditta

Anonymous said...

Elsku Ásgerður
Innilega til hamingju með daginn!
Gaman að fylgjast með ykkur í ævintýraferðinni.
Góða skemmtun áfram.
Karó