Friday, May 2, 2008

Ástrallalía......hér komum við

Við erum komin út á flugvöll, eini staðurinn í Singapore sem er almennilega loftkældur, þvílíkur hiti, það er spurning um að fara í smá hönnunvinnu og hanna svitabelti um mittið og jafnvel nærbuxur með svitabandi í náranum. Það er komið að innritun, á skiltinu stendur Darvin/ Cairns, við erum sem sagt að fá viðbót við ferðina því að Darvin var ekki á upphaflega planinu. Í loftið förum við ......

......og lent í Darvin, þetta er frekar lítil borg á norðurströnd Ástralíu. Vinsæll viðkomustaður fyrir túrista. Því miður náðust engar myndir af salernisaðstöðu í Darvin, hjá okkur er mið nótt...klukkan er 4. Eftir rúmlega klukkutíma stopp er haldið af stað til Cairns......

......og við erum komin á áfangastað. Yndislegt að vera með allt svona vel skipulagt, eldri maður bíður brosandi eftir okkur með nöfnin okkar á spjaldi. Kemur töskunum fyrir í bílinn og brunar í átt að hótelinu. Hver skipulagði þetta eigninlega?????

Tollgæslan er mjög virk hérna í Ástralíu, þeir eru svo sannarlega ekki með sömu vandamál og tollgæslan á Íslandi. Hér er verið að kanna hvort við séum nokkuð með matvörur (hvaða nafni sem þær nefnast, þar með talin flugvélamatur – það eru ekki allir þjóðverjar, ha), minjagripur úr timbri eða náttúrulegar jurtir notaðir í lækningaskini (eru fíkniefni ekki einmitt notuð í því skini, til að lækna eitthvað). Sem betur fer var Sigga frænka búin að nefna við okkur að súkkulaði og annað sælgæti flokkaðist undir matvöru, og því merkti ég við að við bærum matvöru inní landið. Töskurnar voru síðan skannaðar fram og til að staðfesta að við værum með það sem við segðumst vera með. Reyndar var Viggi kallaður til hliðar af útlendingaeftirlitinu og þurfti að sanna að hann ætlaði úr landi aftur. Þeir voru greinilega eitthvað pínu hræddir við að hann myndi setjast að, hahahhah.

Loksins, loksins komin inná hótel, þetta er hótelsvæði þar sem vatn og heilsulindir eru allsráðandi. Veitir ekki af fyrir þreytta sveitavarga frá Íslandi. Dagurinn mun nýtast í hvíld, því að við höfum frekar lítið sofið undanfarinn sólarhring. Á morgun er síðan stefnan tekin á rifin „great barrier reaf“ þar sem við förum í snorkl við rifin og notum svo restina af deginum til að skoða sandeyjarnar fyrir utan Cairns.
Cheers !

p.s. til upplýsinga fyrir ykkur þá er 10 tímamismunur

7 comments:

Anonymous said...

God day mate - welkomin down under
kveðja
Ditts
p.s. Klaki biður að heilsa og hlakkar til að hitta frændfólkið sitt!

Anonymous said...

G'day n welcome to Oz, vá hvað ég er með mikla heimþrá núna! Skemmtið ykkur vel og ekki gleyma að fá ykkur Vegemite í morgunmat, breakfast of champions;-)

Anonymous said...

Núna verðið þið bara að smakka smjörsteiktar lirfur að hætti innfæddra..!

Mamma fer heim á morgun, búið að vera mjög góður tími með henni og
veðrið verið æðislegt.

Hafið þið það gott og allir biðja að heilsa frá Svíþjóð.

Anonymous said...

Vááááá hvað ég er að springa úr öfund hérna hinum megin við skjáinn - og ekki bætir að ég er að lesa fyrir stúdentspróf !
Annars vona ég bara að allt sé frábært hjá ykkur þarna úti - og endilega ef þið sjáið myndarlegan ástralskan strák megiði senda hann til mín í pósti ;)...hahaa

En já ég ætla að fylgjast vel með ferðum ykkar hér á þessari sniðugu síðu ;)
Sjáumst hress og kát!

Anonymous said...

Að lesa ferðasögur frá ykkur kemur manni í svo gott skap. Góða skemmtun. Ástar kveðjur, Magga M. og boys

Anonymous said...

Vá hvað það er gaman hjá ykkur :) Nýt þess algjörlega í botn að fylgjast með ykkur og er eiginlega fegin að vera hér heima hjá mér. Það vantar ævintýramennskuna í sumt fólk.....

Hjördís sófadýr

Anonymous said...

Hæ hæ, þetta hljómar allt geggjað vel sem þið eruð að gera. Hugmyndin með klósettmyndirnar eru að mínu skapi. Skemmtið ykkur eins og enginn sé morgundagurinn. Fylgjumst með ykkur.

Viðar, Ester og Elma Dís