Monday, May 12, 2008

Sidney

Nú erum við komin til Sidney, rétt rúmlega klukkutíma flug frá Brisbain. Við sátum lengur í bílnum á hraðbrautinni í morgun á leið út á flugvöll en við sátum í flugvélinni hingað. En þetta bara herðir mann. Við erum komin í haustið, hér er ekki nema 21 stiga hiti, bbbrrrr......svo kalt.....einmitt.


Ástralirnir eru komnir í vetraklæðnaðinn, síðbuxur, sokkar, úlpur og sumir hverjir með trefla. Er ekki alveg í allt í lagi hérna? Íslendingar rífa sig úr fötunum við minna hitastig en þetta, við erum að tala um hitabylgju á Íslandi við þetta hitastig. Ég er reyndar búin að panta einn gám af vinsælustu kuldastígvélunum hér í Ástralíu, þetta er garanteruð sala heima....Paris Hilton, Jennifer Lopez og Britney Spears ganga allar í svona UGG stígvélum.


Við erum á fínu hóteli í alveg niður við innri höfnina í Sidney. Þegar við komum á hótelið drifum við okkur niður á höfn til að skoða okkur um og fá okkur að borða. Við fundum þennan fína ressa þar sem engin réttur var dýrari en 10 ástralskir dollarar, gott fyrir barnmargar fjölskyldur. Skýringin á verðinu kom ekki fram fyrr en við höfðum klára að borða og vorum á leið út af veitingastaðnum (sem reyndar er opinn út á höfnina). Viðar kom auga á "aðstoðarkokkinn" hann var svartur, loðinn og með mjög langt skott.....(að aftan). Þarna var hann lifandi kominn "Ratatouille"....helv.rottan spókaði sig í makindum eftir gólfinu.....þetta var ekki íkorni fyrir ykkur sem haldið það!
Á morgun bíður okkar morgunsigling um höfnina......the Opera house og allt það.

6 comments:

Anonymous said...

21 stiga hiti í Ástralíu ER kalt! Smá tip ef þið ætlið að borða mikið niðri við sjó..passið ykkur á pelikönunum, þeir eru þjófóttir. Sammála með UGG stígvélin, en það þyrfti bara helst að láta vatnsverja þau fyrir íslenska markaðinn svo þetta verði ekki bara góðir inniskór:-)

Anonymous said...

Uss, að vera að þvælast til Ástralíu í þennan kulda......

Hjördís

Anonymous said...

Kuldi eða ekki kuldi - ég vil frá fréttir úr Óperu húsinu :o)
kveðja
Ditta

Anonymous said...

Ég væri alveg til í að vera með ykkur í þessari ferð, nokkuð ljóst að maður á eftir að fara í þennan heimshluta :-)
Kær kveðja;
Helga og Ragnar

Anonymous said...

Gaman að geta fylgst með ykkur.
Þar sem að þið voruð að leita eftir nafninu á dýrinu, þá held ég að hún heiti Barbara!! (Ég sá bara outfittið á konugreyinu)
Bestu kveðjur
Ester, Viðar og Elma Dís
p.s vona að blóðrennslið í fótunum komist í lag sem fyrst:)

Anonymous said...

Vá.... gaman....
Mamma hvað ertu búinn að fara margar skóbúðir ;)
það er ekki heitt hérna... svona 10-12 stiga hiti... :D
sumarið er á leiðinni ;)
Kv. Elsti sonur