Sunday, May 18, 2008

Nýja Sjáland – Auckland


Eftir smá seinkun og tiltölulega stutt flug erum við komin til Nýja Sjálands, þetta tók þó allt í allt 10 klukkutíma. Útsýnið í aðfluginu var frábært, við flugum yfir Auckland og nærsveitir og sáum stórbrotið landslag. Eftir lendingu tók við svipað ferli og þegar við komum til Ástralíu, fylla út pappíra og meiri pappíra (út úr Ástralíu pappírar og inn í Nýja Sjálands pappírar) síðan tók við Vegabréfaeftirlitið og svo voru allar töskurnar gegnumlýstar. Loksins komumst við í gegn og drifum okkur yfir að afgreiðsluborði HERTZ......nema hvað, klúður eins og venjulega þegar við eigum samskipti við þá. Á endanum gekk þetta þó allt, þó að það hafi munað mjög litlu að ég missti stjórn á skapi mínu og léti afgreiðslukonuna hafa það óþvegið. Anyway....rúmlega sjö að kvöldi og við komin af stað.....ekkert Never Lost kerfi í bílnum og því ókum við eftir lyktar skininu.....djö.......Inga, við erum alveg „never never„ hér á Sjálandinu...hvað er eiginlega norður og hvað snýr í suður.



Eins og venjulega fundum við þetta allt saman á endanum, glæsilegt hótel í miðbæ Auckland. Því miður verðum við hér bara í eina nótt. Okkar bíður eflaust eitthvað enn glæsilegra síðar í ferðinni, eða eins og sagt er hér á Nýja Sjálandi uahu uahu!
Á morgun verðum við í Whitianga.....

1 comment:

Anonymous said...

Ásgerður hvað er þetta með þig og Hertz????
Kveðja
Ditts