Wednesday, May 14, 2008

Nakti kúrekinn


Hver hefur heyrt af nakta kúrekanum? Hann er frá New York, vann fyrir sér sem léttklædd fyrirsæta hér áður fyrr en vinnur fyrir sér í dag með því að koma fram nakinn og spila kántrílög. Já er það ekki, þið kannist við kauða. Allavega var það í blöðunum hér að hann væri að koma til Sidney til að heilla kvennpeningin upp úr skónum. Hann var búin að vera í Melbourne og klípa í a.m.k. 200 afturenda, og allavega helmingi fleirri hendur höfðu komið við sitjandann á honum á sama tíma. Í morgun fórum við í létta göngu sem reyndar endaði í maraþongöngu áður en við náðum heim á hótel aftur, við vorum svona frekar snemma í því og því var það að þegar við komum inní eina af verslun hér við göngugötuna að við héldum að það væri ekki búið að opna, því við gátum ekki betur séð en að það væri nakinn maður inní búðinni....en í ljós kom að þarna var kominn nakti kúrekinn. Ómæ, við ekkert smá heppinn.......djö..hann er í nærbuxum ....þetta er svindl...á hann ekki að vera í Adams klæðunum einum? Við fengum þó myndir af drengnum og smá video sem verður sýnt á næsta konukvöldi í Víðihlíðinni (þetta er ekki fyrir börn). Ef þið eruð heppinn þá mun Viggi sýna ykkur kengúrupung sem hann fjárfesti í.




Sidney heldur áfram að heilla okkur upp úr skónum, og ekki skemmir fyrir að veðrið er alveg yndislegt, sól og hlýtt (24 gráður í dag). Georg er okkur ofarlega í huga, því það er alveg sama hvert litið er nafnið hans er alls staðar. Georgsstræti er ein aðalgatan í Sidney, Georgs raftækjavöruverslun, Georgs veitingahús, Georgs pöbb, St.Georgs og svo framvegis......Goggi þú ert alveg ótrúlega vel skírður.







Maraþongangann sem við nefndum hér að framan er engin lygi, við erum hreinlega gengin vel uppá herðablöðin........ekki það að við höfum ekki gott af þessu, en fyrr má nú aldeilis fyrr vera........gott að vera vel byrgður af fótakremum.
Á morgun þá ætlum við að fara, þó ótrúlegt megi virðast uppí fjöllin hér fyrir ofan Sidney, skoða regnskóga (já, það eru engin tré á Íslandi og eins gott að skoða þetta bara vel hér) og ef að líkum lætur, verður hægt að fara í skíðabox (uppáhalds ferðamáti minn) og skoða hvernig þetta lítur allt saman út ofanfrá (þ.e. Blue Montain).




Jííííí ha (eins og kúrekinn myndi segja)

8 comments:

Anonymous said...

mikið rétt, ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir því að það ER hægt að fara í skíðabox í Blue Mountains...og þar er líka hægt að skoða 'the three sisters', bið að heilsa þeim;-) og að lokum bendi ég á að Georg er vinsæll báðum megin á Ástralíu, því aðal business gatan í Perth heitir einmitt.....St. George´s Terrace!

Anonymous said...

Ég á eftir að sjá Vigga á nærbuxunum, þá skal ég dæma hvor er meira kjút :)

Hjördís

Anonymous said...

úlalala heppin.... hlakka til "konukvöldsins" - hafið það gott.... og Ásgerður Helena er klár í slaginn 2. júní :)
kveðja
Ditta

Goa said...

Hann klæðir þig mun betur en Vigga þessi kúreki..:)
Gott að allt er bara gaman...og frábært hvað þið eruð dugleg að blogga!!
Besta daginn til ykkar allra!
Knús...

Anonymous said...

Já ég er aðalkallinn og varist eftirlíkingar því ég er hinn eini sanni nakti kúreki.Gaman að fylgjast með góða skemmtun áfram.Kærar kveðjur af Grenimelnum,það er 20 stiga hiti(inni) Goggi

Anonymous said...

Ég horfi á þessar myndir frá ykkur og dagatalið til skiptist, styttist í að við förum til Spánar og mikill spenningur í gangi :)
kv. Kidda

Anonymous said...

Váááá hvað maður verður að skella sér til Sidney bráðum !!

Georg er toppnafn en "Georgsdóttir" er jafnvel betra ;)

ef þið sjáið annan kúreka.. þá bið ég að heilsa;)

Anonymous said...

Nú já,,, pungarnir eru þá jafn vinsælir þarna og hér heima;-) ...
...og kúrekinn er svakalega flottur!!

Kveðja
Maja