Thursday, May 22, 2008

Indiana Jones í Wellington


Eftir rúmlega 5 tíma akstur erum við kominn til Wellington syðst á norður eyjunni. Að sjálfsögðu er Frónið fallegast, en Nýja Sjáland fer langt í að jafna það. Ekki skemma heldur haustlitirnir fyrir sem skartu nú sýnu fegursta.


Ójá....við erum sko búin að sjá Indina Jones.....nananannnaaa........og ekkert smá góð mynd eins og Viðar sagði þegar við gengum út úr bíóinu. Bara til að upplýsa alla Indiana Jones aðdáendur þá er þetta örugglega ekki síðasta myndin sem Harrison Ford mun leika Indiana í.


Í bílnum á leiðinni hingað í dag var ýmislegt rætt. Þar á meðal var komið inná ættfræði, ömmur og afar, frænkur og frændur og allt það. Það er eins og fjarlægðin geri mann ættræknari en ella. Ásgeir Snær var að tala um ættmenni sín í Vestmannaeyjum, og segir allt í einu við pabba sinn, "hey pabbi, er amma Bára ekki frænka þín?" Viggi hváði við og drengur segir aftur og nú enn ákveðnari "er hún amma Bára ekki frænka þín pabbi?" Já, þetta getur verið svolítið flókið þegar maður er bara 8 ára.



Deginum á morgun verður varið á slóðum Hringadróttinsögu og eflaust verður hægt að koma með eitthvað bitastætt þaðan. Annars sendi þið okkur bara sögur af Eurovison partýunum sem verða um allan bæ í kvöld. Ikke sant? Við reynar vitum úrslitin því að við erum 12 tímum á undan ykkur. Áfram Ísland :-)



Mér skilst að sumir hafi átt erfitt með að "commenta" á síðuna hjá okkur. Það sem þið eigið að gera er að lesa bloggið (hvað annað), síðan er neðst á hverju bloggi lítil grá lína þar sem stendur "Posted by Fjogur fraeknu at 11:29 PM 2 comments " þið smellið bara á comments og setjið þar inn texta (að eigin vali). Þegar því er lokið þarf að setja inn í stafina sem birtast í grænum lit fyrir neðan gluggan í reitinn þar sem hjólastólamerkið er. Reiturinn heitir "Word Verification" ok

11 comments:

Anonymous said...

já þið eruð sko ekki ein um að vera búin að sjá Indiana Jones, mín fór á sérstaka forsýningu í gærkveldi...þannig að na na na na bú bú right back at ya;-) Eruð þið búin að fara í Ný-Sjálenska 'hangi' veislu? Bið að heilsa Gandálfi og öllum hobbitunum....og þar sem þið eruð 12 tímum á undan...hjartanlega til hamingju með 25 ára afmælið elsku Ásgerður!;-)

Anonymous said...

Blessuð þið öll og innilega til hamingju með þennan merka áfanga
í dag elsku Ásgerður. Frekar ruglingsleg bókun hjá Herjólfi, en
samt í lagi núna nema bíll til baka, sem er hægt að skoða 30.mai kl 12 á hádegi.
Eins gott hjá ykkur að bóka það sem skeður, annars of mikið að muna
og annars er ekki fullt af skildfólki þarna, eða nennti það ekki ofaneftir? Bestu kveðjur Amma Stína

Anonymous said...

Happy birthday to you happy birthday to you happy birthday my best Friend Ásgerður happy birhtday to you. I love you,
Magga
p.s eigðu frábæran dag.

Anonymous said...

Áfram 'Island. This is my life!!!!

Anonymous said...

Hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún Ásgerður
hún á afmæli í dag
við munum borða tertu í dag þér til heiðurs :)
Til hamingju Ásgerður og Ísland :)
kv. Kidda

Goa said...

Ja, må hon leva,
ja må hon leva,
ja, må hom leva upp till hundrade år
ja, visst ska hon leva,
ja vist ska hon leva,
ja visst ska hon leva upp till hundrade år!
HippHipp,Hurra,Hurra,Hurra!!!!

Til hamingju með daginn Ásgerður!
Velkomin i hópinn..;)

Ástarkveðja frá okkur i Sverige...

Anonymous said...

Hjartanlega til hamingju með daginn elsku Ásgerður:-)) Eigðu yndislegan dag.
Kv. Maja

Anonymous said...

Elsku Ásgerður
Innilega til hamingju með daginn:-)
Biðjum að heilsa strákunum þínum.
Kveðja Anna og co.

Anonymous said...

Sæl öll, frábært að fylgjast með ykkur, og Ásgerður innilegar haminguóskir í tilefni dagsins þessar tölur segja ekki nema hálfa söguna, Kveðja frá Tótu, Eyjó og fylgifiskunum...

Anonymous said...

Hæ hæ kæru vinir.
Ég er ein af þeim sem er svolítið fötluð að setja inn á þetta blogg. Það er búið að vera gaman að fylgjast með ykkur og Ásgerður til hamingju með daginn, ég næ þér nú fljótlega. Bestu kveðjur frá okkur öllum í Goðheimum

Anonymous said...

HÆ HÆ Ég heyri að þið hafið það gott.
Er búinn að senda einhver 7 sms...... fékstu enginn af þeim.... JÁ ég er kominn með vinnu.... JÁ ég náði öllum prófonum nema einu.... JÁ það gengur vel.... Og JÁ TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ elsku mamma...... Kominn sá tími að þú getur sagt ég er 2/5 úr öld ;)..... veðrið hérna er einhvað aðeins slakara en í byrjun hjá för ykkar.... Og já vá..... fékk Viðar og Ásgeir að skjóta úr paintball ???? OMG Feingu þeir að skjóta einhvern ;)